Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 355
BÚNAÐARRIT.
335
því þyrfti að eins að lesa og leggja saman, og ætti þá
ekki að vera hætta á villum.
Yikulega er reiknað út, hve mikið smjör hafi feng-
ist úr feitinni, og er það gert þannig: Öll kg. smjör-
feiti, sem farið hafa í smjörið um vikuna, eru lögð sam-
an, og er bezt að gera það í bók, sem geymd er hjá
reikningshaldara.
Smjörið, sem fengist hefir úr þessari feiti, er vegið,
og nú er aðgætt, hve mörg kg. af smjörfeiti hefir þurft
í 100 kg. af smjöri.
Áður en þetta er gert, þarf þó að draga frá 2% af
þunga smjörsins fyrir rýrnun. Það er þá sett þannig;
upp:
kg. vikusmjör -=- 2% ______ kg. vikufeiti
100 kg. smjör x
kg. vikufeiti X 100
QQ ■■ . - ___________________
kg. vikusmjör r£- 2°/«
Þar sem x er sama sem þungi þeirrar smjörfeiti, sem
hefir þurft í 100 kg. aí smjöri.
Kg. smjörs hvers einstaks hluthafa um vikuna eru
nú fundin með því, að margfalda kílógrömm smjörfeiti
hvers 'einstaks með 100 og deila með x (o: tölu þeirra
feitikílógramma, sem þyrfti í 100 kg. smjörs). Tökum
dæmi: A. hefir eina viku sent til búsins 78 kg. smjör-
feiti, sem fóru til smjörframleiðslu. Þá viku hafa allir
hluthafar sent 880 kg. feiti til smjörframleiðslu á búið.
Úr þessum 880 kg. feiti hafa fengist 1000 kg. af smjöri.
Hvað á þá A. að fá mikið fyrir sín 78 feitikílógrömm?
1000 kg. -f- 20 _ 880 kg.
100 kg. x
880 X 100
x =---------------=89,8 feitikg.hefirþurfti lOOkg.smjörs..
Þá á A. ■1g*e°0- = 86,86 kg. af smjöri.
Hafi nú smjörkg. selst á kr. 2,00 þessa viku, þá á
A. að fá 86,86 X 2,00 = kr. 172,72 fyrir sitt smjör.