Hugur - 01.01.1988, Side 6

Hugur - 01.01.1988, Side 6
INNGANGUR Á þeim tólf áram sem liðin era síðan Félag áhugamanna um heimspeki var stofnað, hefur hugmyndinni að útgáfu tímarits um heimspeki margsinnis skotið upp kollinum. Líkt og aldur hugmyndarinnar gefur til kynna, þá hefur henni jafnan verið hafnað eða skotið á frest. Forsendumar þar að baki hafa heldur ekki verið rótlausar fremur en vænta má af fólki sem kennir sig við heimspeki. Tormerki slíkrar útgáfu era margvísleg eins og nærri má geta, en sama máli gegnir um kostina, sem á endanum urðu hvat- inn að því tímariti sem nú hefur göngu sína. Einhver kynni að spyija sem svo hvort ekki gefist nægjanlegur kostur til þess að koma heimspekilegum hugðarefnum á framfæri í þeim fræðilegu tímaritum sem fyrir era í landinu? Eða þá hvort sérrit um heimspeki leiði ekki til algerrar sérhæfingar sem eingöngu komi fámennum hópi fólks til góða? Spumingar sem þessar eru ekki aðeins réttmætar heldur leiða þær einnig í ljós þann vanda sem við er að etja í útgáfu slíks tímarits. Heim- spekigreinar sem birtar era í almennum fræðitímaritum þurfa gjaman að vera almenns eðlis og taka þannig mið af fjölbreytileika lesendahópsins sem slík tímarit höfða til. En heimspekingar skrifa sérhæfðari texta líka og sem betur fer fyrir viðgang heimspekinnar í þessu landi þá skrifa þeir meira en myndi rúmast með góðu móti á síðum þessara ágætu tímarita. Sérhæfður texti þarf heldur ekki að þýða að merking hans sé með öllu hulin þorra fólks. Veldur hver á heldur og það er einlæg von þeirra sem að útgáfu þessa tímarits standa að þannig megi til takast við útgáfuna að fræðimennska sú sem að hér birtist sé þannig fram sett að hún sé hverjum þeim er eftir leitar auðskilin hversu svo sem hún er sérhæfð. Einstigið milli sérhæfingar og skýrleika er vandratað en leiðarljós engu að síður. Ég sagði hér að ofan að heimspekingar í þessu landi skrifuðu mikið. Það sem meira er, margt af efni þeirra er að glatast. Sú staðreynd ein og sér ætti að vera nægjanleg réttlæting til handa þeim sem nenna að raða forgengi- legum brotum saman í rit, sem vonandi endurspeglar að einhverju marki þá tíma sem þau vora samin á. Eftir stendur þá sú von að forgengileikinn grandi ekki útgáfunni sjálfri og að hugur fylgi máli meðal félagsmanna og annarra lesenda. Vonandi verða orð þau er Davíð Hume viðhafði um útgáfu bókar sinnar Ritgerð um manneðlið ekki að mínum. Jörundur Guðmundsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.