Hugur - 01.01.1988, Page 17

Hugur - 01.01.1988, Page 17
HUGUR MIKAEL M. KARLSSON hann til annars.21 Hér er Newton greinilega að lýsa tilhneigingu hluta til hreyfingar og stöðvunar. Að vísu lýsir Aristóteles náttúrum sínum sem „innri“ og „eðlislægum“, en með því á hann ekki við annað en að til dæmis sú tilhneiging hins fasta frumefnis, að leita í átt til miðju jarðar, sé tilhneiging sem það hefur sem jarðefni. Sambærileg til- hneiging yfirhafnar er ekki tilhneiging hennar sem frakka - yfirhafnir hlíta ekki eigin hreyfilögmálum, þær eru ekki nátt- úrulegir hlutir - heldur hefur frakkinn tilhneigingu jarðefnis- ins sem hann er saumaður úr.22 Hér er á ferðinni einföldun af því tagi sem Cotes leggur blessun sína yfir þegar hann talar um að „leiða orsakir allra hluta út frá einföldustu frumsetningum": Við tölum hvorki um „innra“ né „eðlislægt“ hreyfilögmál yfirhafnar, eða rúmstæðis, eða skýja, því það er hægt að skýra náttúrulega hreyfingu þeirra fullkomlega með lögmálum sem stjóma hreyfingu hinna einstöku frumefna sem þau eru samsett úr: Það er í frumefnunum, ekki í frökkum eða rúmum, sem lögmálin búa. Ég sé ekkert hér sem „þeir sem kunna skil á tilrauna- heimspeki“, eins og Cotes lýsir þeim, geta haft á móti. Newton hefði til dæmis alveg eins getað sagt, að frakki hafi tregðu, eða dragi að sér aðra hluti, en ekki sem frakki heldur sem hlutur, og þannig má segja að tregðan og aðdráttaraflið búi í hlutum. Við getum gengið ennþá lengra, því ég sé ekki betur en að lýsing Cotes á aðferðum tilraunaspekinganna eigi engu síður við um Aristóteles en um Newton. Þetta ætti að skýrast í framhaldinu. V Eins og fram kom, nær náttúrugripaskrá Aristótelesar aðeins til lifandi vera og líffæra þeirra, auk höfuðskepnanna. Nú er náttúruleg tilhneiging höfuðskepnanna sú að hreyfast eftir beinum línum, en náttúruleg hreyfing jurta, dýra og líffæra þeirra virðist ekki fylgja neinu svo einföldu mynstri. Lögmálin sem stjóma hreyfingum lífvera eru sýnilega allt önnur, og 21 Op. Cit., bls. 13. 22 Eðlisíræðin 192bl0 og áfram; sbr. Umhimnana 311a32-311bl og þar um kring. 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.