Hugur - 01.01.1988, Page 85

Hugur - 01.01.1988, Page 85
HUGUR PÁLL SKÚLASON 3. Heimspekin og skoðanir heimspekinga Þó að þessu sé þannig varið með notkun orðsins „heimspeki" í daglegu tali, er ekki þar með sagt að heimspekin sem tiltekinn hugsunarháttur - sem ákveðinn háttur á að leita skilnings og skýringa - sé óskilgreinanleg með öllu. Heimspeki greinir sig óneitanlega frá trúarbrögðum, stjómmálum, vísindum og list- greinum á borð við ljóðlist, myndlist og tónlist. Hvað einkennir heimspekina, gefur henni sérstöðu með tilliti til allrar annarrar starfsemi manna? Til að leita svara við því virðist eðlilegast að snúa sér til heimspekinganna sjálfra og spyrja þá hvað sérkenni starfsemi þeirra og greini hana frá annarri iðju manna. Og vissulega komum við ekki að tómum kofanum hjá þeim. Það er leitun á heimspekingi sem ekki hefur haft eitthvað mikilvægt að segja um heimspekina sjálfa. Em þá ekki þrautir okkar á enda og ekki annað eftir en finna út nákvæmlega hvað heimspekingamir sjálfir hafa að segja um heimspekina, hvemig þeir svara spumingunni „hvað er heim- speki?“ En nú fyrst vandast málið. Ef við lítum á það sem heim- spekingamir hafa sjálfir að segja um heimspekina, hvað hún sé eða hvað hún eigi að vera, þá rekumst við á hin sundurleitustu sjónarmið og skoðanir. Heimspekingar fella oft hina hörðustu dóma um fræði hvers annars og virðast oft gersamlega ósam- mála um það hver séu mikilvægustu einkenni heimspekinnar, hverjar aðferðir hennar séu, að hverju hún stefni og við hvað hún fáist. Einn telur megineinkenni heimspekinnar vera gagn- rýni á hleypidóma og alla fomeskju í trú og hugsun, annar telur megineinkenni hennar vera greiningu hugtaka, hinn þriðji að megineinkenni hennar sé að skýra merkingu lífsins. Þessar þrjár skoðanir, sem hér eru nefndar sem dæmi um ólík viðhorf heimspekinga, stangast þó í sjálfu sér ekki á, held- ur geta mæta vel farið saman og átt við einu og sömu heim- spekina sem er þetta allt í senn: gagnrýni á tiltekna hleypidóma, greining tiltekinna hugtaka og viðleitni til að sjá einhverja merkingu í lífinu. Það kann jafnvel að reynast erfitt að finna heimspeki sem ekki ber þessi einkenni öll með einum eða öðr- um hætti. Það em því ekki þessi einkenni út af fyrir sig sem eru helstu ágreiningsefni heimspekinga, heldur eitthvað annað. 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.