Hugur - 01.01.1988, Side 95

Hugur - 01.01.1988, Side 95
HUGUR GUNNAR HARÐARSON hvorn hluta Rökræðulistarinnar. í skýringarritinu leggur Brynjólfur áherslu á einingu hugtakanna í andstæðum sínum og reynir hann að draga fram og skýra ýmsar þær platónsku for- sendur sem rökræðulist Ramusar byggist á. Meginhugmynd Ramusar er sú að hlutverk rökræðulistarinnar sé að laða fram hinn náttúrlega hæfileika mannsins til þess að beita skynsem- inni og þjálfa hann í því að gera það vel. Skýringarrit Brynjólfs dregur dám af skýringarritum endurreisnartímabilsins, þar eð Brynjólfur ber eigin sjónarmið saman við skoðanir annarra og gefur oft fjölda tilvitnana úr mörgum heimildum til þess að sanna mál sitt eða hrekja skoðanir hinnar aristótelísku skóla- speki. Framsetning hans á rökræðulistinni byggir því á kenni- valdi engu síður en rökhugsun. Þó að Brynjólfur hafi innleitt Rökræðulist Ramusar í Skál- holt um 1640, var heimspeki Ramusar í sjálfu sér ekkert ný- mæli meðal íslendinga. Að minnsta kosti tveir lærðustu menn þjóðarinnar höfðu kynnst henni á námsárum sínum í Kaup- mannahöfn upp úr 1580. Það voru Oddur biskup Einarsson (eða Otto Einarus eins og hann nefndist þar) og Amgrímur Jónsson lærði. Heimildin fyrir áhuga Odds á heimspeki Ramus- ar er frásögn Jóns Thorchillius í Ki0benhavnske Nye Tidende om lærde og curieuse Sager árið 1792 þar sem hann segir Odd hafa lagt sig eftir heimspeki, „ramistica imprimis“, og stjömu- fræði, en Oddur var nemandi Tycho Brahe. Thorchillius nefn- ir að vísu ekki heimspeki Ramusar í riti sínu Specimen Islandiæ non barbaræ en það kemur vel heim og saman við tíma og stað að Oddur hafi hneigst til ramískrar heimspeki, þó að ekki sé víst að það hafi verið í jafnmiklum mæli og Brynjólfur. Um Amgrím er það að segja að hann nefnir sjálfur Ramus á nafn oft í ritum sínum og segir um hann að hann sé „in omnium literarum genere scriptor exquisitus“ (hinn ágætasti höfundur í öllum bóklegum menntum). Auk þess studdist Amgrímur við rit Ramusar þegar hann samdi latneska málfræði sína, Grammatica, sem hann gaf út á Hólum árið 1616, en þar reyndi hann að laga málfræði Ramusar að málfræði Melanchtons. Því má telja að heimspeki Ramusar hafi verið þekkt á íslandi í byrjun 17. aldar, bæði í Skálholti og á Hólum, um svipað leyti og vegur hennar reis hvað hæst í Danaveldi. En nokkru eftir 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.