Hugur - 01.01.1988, Page 99

Hugur - 01.01.1988, Page 99
HUGUR GUNNAR HARÐARSON (Pericula). Samkvæmt frásögn Torfa Jónssonar hafði Brynj- ólfur áætlað tíu kapítula og var búinn með þrjá, þar af eru tveir varðveittir (nema telja eigi innganginn sem fyrsta kapítulann, þá er allt varðveitt sem Brynjólfur hefur gengið frá), en Jón Halldórsson segir að hann hafi áætlað 20, lagt drög að 10 og hreinritað þrjá sem hann lánaði Henrik Bjelke en fékk ekki aftur og hafi hætt við verkið í kjölfar þess. Sömu sögu er að segja af hugmyndum Brynjólfs um að prenta fomíslenskar bókmenntir. Af bréfi hans til Lange 1656 sést að handritasöfnun hans hefur fyrst og fremst verið til þess hugsuð að prenta mætti fomritin „per columnellas“(í dálkum), þar sem frummálið yrði í einum dálki og dönsk eða öllu heldur latnesk þýðing í hinum. Honum var ljóst að Danir gátu ekki notfært sér þessi rit án stuðnings íslendinga, sem og var raunin á þessum tíma, og að ef fomritin yrðu ekki prentuð væri hætta á að þekking manna á þeim glataðist, því að þeir væru fáir sem gætu lesið gömul handrit. Þetta staðfestist reyndar í bréfi Worms til Stephaniusar áriðl641 þar sem hann segir að „In prisca hac lingva et literatura plane idiotæ sunt hi qvi hic reperiuntur Islandi, nobis nulli usui“(í þessari fomu tungu og bókmenntum eru þeir íslendingar sem hér [í Kaupmannahöfn] fyrirfinnast hreinir fáráðlingar, okkur vita gagnslausir). Skilningur Brynjólfs á forníslenskum bókmenntum virðist markast af lífsskoðun siðbótarmannsins, sem skilgreindi sig í andstöðu við hinn foma sið, því að Brynjólfur gerir ráð fyrir því að til hafi verið eitthvað sem kalla mátti hina fomu heim- speki og guðfræði, sem kristnin hafi að mestu bælt niður. Sagnaritunin telur hann hinsvegar að hafi varðveist betur, sennilega vegna þess að hún braut ekki að hans dómi eins þver- lega í bág við kristna trúfræði og hin fomi heiðni siður hafði gert. Brynjólfur virðist framar öllu hafa haft áhuga á þessari hlið fommenningarinnar; hann virðist ekki hafa gert Islend- ingasögurnar eða fornritin almennt vísvitandi að stílfyrir- myndum í anda fommenntastefnunnar, eins og tíðkaðist t.d. í latínuskólunum þar sem nemendur vom látnir líkja eftir klassískum höfundum. Það er ekki fyrr en nokkru seinna að dæmi þess sjást í íslenskum móðurmálsbókmenntum, og eitt fyrsta og besta dæmið um áhrif frá fombókmenntunum má sjá 97 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.