Hugur - 01.01.1988, Page 101

Hugur - 01.01.1988, Page 101
HUGUR GUNNAR HARÐARSON Marsilio Ficino og fleiri. Sennilega hefur hann fyrst og fremst verið að hugsa um sálarfræðina. Strax í Pericula in Saxonem var hann byrjaður að fást við þetta efni. Þriðji kaflinn hefur, ef marka má Historica narratio, haft að geyma efni sem kemur heim og saman við það sem vitað er úr öðrum heimildum um hugmyndir Brynjólfs um þessa bók oj> hefur meðal annars fjallað að einhverju leyti um goðafræði Islendinga hinna fomu. Andstæðir mermingarheimar Samspil menningarheimanna tveggja á rithöfundarferli og í starfi Brynjólfs átti sér því ekki aðeins stað á sviði máls, heldur líka mennta og menningar. Eins og sagt var hér í upphafi byggðist öll menntun Brynjólfs á hinum latneska, lærða heimi, en hún gerði honum kleift að öðlast skilning á hinum íslenska menningarheimi. En þetta þýddi að honum varð ljóst það djúp sem var á milli ekki bara danskra kunningja hans úr hópi menntamanna, heldur líka samtímamanna hans íslenskra og hinnar fomu íslensku menningar. Þannig stóð hann frammi fyrir tvöfaldri hindrun: annars vegar milli latfnumennta og norrænnar menningar, hins vegar milli fomíslenskrar menn- ingar og samtíma síns á íslandi. Og einmitt þess vegna þurfti að gefa fomritin út, prenta þau. Ekki var nóg að varðveita gömul handrit, því að of fáir kunnu að lesa þau. Hins vegar höfðu Danir allt of litla þekkingu á íslensku máli og þurftu á íslend- ingum að halda til að þýða fyrir sig. Þess vegna átti það að vera „per columnellas“, latína og þjóðtunga hlið við hlið, til þess að gagnast bæði lærðum og þeim sem gátu ekki lesið latínu, og á þennan hátt yrðu ritin tekin inn í báða menningarheimana. En þó að það væri þannig mikið sem mælti gegn einingu þessara tveggja menningarheima, hins latneska og hins nor- ræna, þá var Brynjólfur sennilega sannfærður um að ef málið væri skoðað í heild ættu þeir þó nokkuð sameiginlegt. Þessu til stuðnings hafði hann tvö sjónarmið, eitt heimspekilegt, eitt sögulegt. í skýringarritinu yfir Ramus kemur fram að Brynj- ólfur sem nýplatónisti lítur svo á að allir hlutir séu komnir frá hinu Eina, og beri með sér svip einingarinnar, ekki þrátt fyrir að þeir séu margir, heldur einmitt í margbreytileik sínum, því að ekki sé til eitt hugtak án annars, engin margbreymi án ein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.