Hugur - 01.01.1988, Blaðsíða 104
SKÝRINGAR VIÐ RÖKRÆÐULIST RAMUSAR
HUGUR
hverju markmiði, og kemur að almennum notum í lífinu.]1 Það
er: List er samræming, samsetning, skilningur, samning reglna
og fyrirmæla sem menn hafa myndað með hugsun og reynslu
og sem hafa verið samæfðar (það er framkvæmd og notkun
viðtekinna hluta sem hafa verið reyndir til þrautar með dag-
legri notkun) og að einhverju markmiði, og gera almennt gagn,
í mannlífinu.2
2. „Disserere“3 er að sá skipulega um ákveðin og aðskilin
svæði. En þetta orð er yfirfært frá iðju grænmetisbænda, akur-
yrkjumanna og garðyrkjumanna til innri starfsemi hugans. Því
að þegar rökræðumaðurinn notar list sína eins og hygginn
bryti og bústjóri og sækir í hið ríkulega forðabúr skynsem-
innar ferst honum allt vel úr hendi sem að ætlunarverki hans
lýtur, leitar fanga með hugviti sínu og skipar því og raðar með
dómgreindinni, eftir því sem hann sér hversu hin einstöku
atriði koma málinu mest við.
Nemendur skulu ekki láta þessa þrengdu merkingu orðsins
koma sér úr jafnvægi, þegar þeir heyra höfundinn gagnrýndan
fyrir að hafa notað orð í breyttri og myndhverfri merkingu,
einkum í skilgreiningu, sem á að skýra það sem skilgreina skal,
og ber þess vegna að felast í hreinum, beinum og eiginlegum
orðum. En slíkum gagnrýnendum finnast öll orð sem notuð em
í breyttri merkingu valda óskýrleik. En reyndar svarar Ramus
1 Hermogenes hafði án efa í huga þessa skilgreiningu Lúkíanosar, sem
við minnumst nú á, í upphafi verksins Perí staseon, þar sem hann
endurtekur hana með sínum heitum og rekur með hana þessum orðum:
Pollon onton kai megalon, ha ten hretoríken synistesi kai technen
poiei, katalefþenta te ex arches dela de kai syngymnaþenta to chrono
safe te ten ofeleian parechomena to bio kan tais boulais, kan tois
dikasteríois [Þeir mörgu og mikilvægu hlutir sem skapa mælskulistina
og gera hana að list, eru bæði skýr skilningur á frumforsendum,
æfingin sem kemur með timanum, og notagildið fyrir lífið, bæði á
þingum og fyrir dómstólum], þar sem þekkja má aftur okkar skil-
greiningarorð: systema, katalepsin, syngymnasian, ofeleian [kerfi,
skilning, samhæfing og gagnsemi], lítillega aðlöguð að ætlun höfund-
arins.
2 Sturm í Partítiones Orat. Dialog: 1: "Því að list er...etc"
3 Latneska orðið „disserere“ merkir eiginlega 'að sá á víxl'. íslenska
orðið „víxlyrkja" stæði því sennilega einna næst, en það nær ekki yfir-
færðri merkingu orðsins, sem er að rökræða [þýð.].
102