Hugur - 01.01.1988, Page 108

Hugur - 01.01.1988, Page 108
NELS ON GOODMAN HEIMURINN EINS OG HANN ER1 1. Inngangur. Heimspekingar rugla stundum sérkennum á umtali saman við sérkenni á umtalsefninu. Við drögum sjaldan þá ályktun að heimurinn samanstandi af orðum af því einu að sönn lýsing á honum geri það, en stundum höldum við að heimurinn sé byggður eins upp og lýsingin. Þetta getur jafnvel gengið svo langt að úr verði heimsmálfræði þar sem heimurinn er hafður samsettur úr frumeindum sem svara til tiltekinna eiginnafna, og úr grunnstaðreyndum sem svara til grunnsetninga. Sá heim- spekingur sallar eigin kenningu niður í fáránleika sem heldur því fram að einföld lýsing geti því aðeins verið við hæfi að Þessi grein er þýðing á grein Nelsons Goodman „The Way the World Is“, sem birtist fyrst í Reviewof Metaphysics Vol.14 (1960) 160-167. Síðan hefur hún verið prentuð í Problems and Projects (Bobbs Merrill: Indianapolis, 1972). Nelson Goodman (f.1906) er bandarískur heimspekingur sem hefur fjallað um margvísleg efni í ritum sínum. í StructureofAppearance(Harvard University Press: Cambridge, Mass., 1951) um þekkingarfræðileg kerfi og uppbyggingu þeirra, í Fact, Fiction and Forecast (Harvard University Press: Cambridge, Mass., 1955) um aðleiðslurök, í Languages ofArt (Harvard University Press: Cambridge, Mass.,1968) um táknakerfi, í Problems and Projects m.a. um merkingu, líkingu, aðleiðslu og einfaldleika, og í Ways of Worldmaking (Harvester Press: N.Y., 1978) og Of Mind and Other Matters (Harvester Press: N.Y., 1984) um „veraldasmíði" og fleira. I þeim öllum liggja í loftinu þær hugmyndir sem reifaðar eru í þessari ritgerð. En það er fyrst og fremst í þessari grein, í Ways of Worldmaking og Of Mind and OtherMatters sem þær eru sjálfar gerð- ar að umræðuefni. í þessari ritgerð heldur Goodman því fram að engin ein mynd eða lýsing segi okkur hvemig heimurinn er og allar virðist þær afbaka hann. Af þessu dregur hann ekki þá ályktun að um ver- öldina verði ekkert vitað, heldur að til séu margar jafngóðar myndir og margar jafnsannar lýsingar sem hver um sig segi okkur eitthvað. Goodman gengur hér ekki jafnlangt og hann gerir í Ways of World- making og Of Mind and Other Matters. í þessum bókum er staðhæft að andstæðar kenningar geti báðar verið sannar ogþær lýsi því ólíkum raunverulegum heimum (sem við höfum smíðað). I þessari grein lætur Goodman sér nægja að segja að jafnsannar lýsingar lýsi ólíkum háttum heims/ns. Þess ber að geta að allar neðanmálsgreinar eru þýðandans.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.