Hugur - 01.01.1988, Side 120
RITDÓMAR
ERLENDUR jónsson
FRUMHU GTÖK RÖKFRÆÐINNAR
VÍSINDAHEIMSPEKI
Háskóli íslands, Reykjavík 1984-5.
Fáein orð um vísindaheimspeki og frumhugtök rökfræðinnar
Nú um nokkurt skeið hafa fengist í Bóksölu stúdenta tvær bækur eftir
Erlend Jónsson Ph.D. Önnur þeirra er Frumhugtök rökfræðinnar, sem
kom út árið 1984. Hin heitir Vísindaheimspekiog kom út árið 1985. Báðar
þessar bækur eru kennslubækur og einkum ætlaðar til kennslu á háskóla-
stigi. Því miður skortir nokkuð á að frágangur þeirra sé sem skyldi. En
efnistök beggja em til fyrirmyndar, svo með smálagfæringum og betri frá-
gangi má gera úr þeim eiguleg rit og ágætar kennslubækur.
Eins og nafn hennar bendir til er Frumhugtök rökfræðinnar eins konar
inngangur að rökfræði. Hún fjallar einkum um hvemig skal þýða setningar
af venjulegu máli yfir á mál rökfræðinnar og um ýmis framspekileg og
málspekileg hugtök, sem rökfræðingum er nauðsynlegt að hafa á reiðum
höndum: Hér má nefna sem dæmi greinarmun skilnings og þýðingar, mun
notkunar og umtals, rökform, samsemd, einstæður og fjölstæður, túlkun,
sannleik og skilgreiningar. Umfjöllun um þessi hugtök er skilmerkileg og
ítarlegri en gerist í kennslubókum. Hún er líka, ásamt umfjöllun um þýð-
ingar af hversdagsmáli yfir á rökffæðimál, meginefni bókarinnar. Minna er
um eiginlega rökfræði, það er rökfræðilegar aðferðir til þess að finna gildi
setninga, tæknibrellur og afleiðsluaðferðir. Þó er fjallað um sanntöflur og
aðferðir til þess að finna rökfræðilegt gildi setningarökfræði.
Um þessar mundir vinnur Erlendur að framhaldi á Frumhugtökum
rökfræðinnar. Sú bók mun heita Aðferðir rökfræðinnar. í henni verður
farið í eiginlega rökfræði.afleiðslureglur, sannanir og því um líkt.
Óhætt er að fullyrða að Frumhugtök rökfræðinnar bæti úr brýnni þörf
fyrir kennsluefni í rökfræði á íslensku. Verði Aðferðir rökfræðinnar jafn
greinargóð og skilmerkileg og Frumhugtökin, þá verður komið efni, sem
nægir til þess að veita heimspekingum þá lágmarks rökfræðiþekkingu sem
þarf til þess að þeir geti stundað fræði sín af einhverju viti. En mikilvægi
staðgóðrar rökfræðiþekkingar verður seint með orðum ýkt: Rökfræðin
setur hugsuninni lög og hugsun sem brýtur þessi lög er að engu hafandi og
má þá einu gilda hve trygg hún tjáist; Rökfræðin gagnast ekki aðeins þeim
sem fjalla um heimspeki, heldur öllum þeim sem þurfa að setja fram skyn-
samleg rök, hvort heldur er um fræðileg efni eða hvað annað; hún kennir
mönnum ekki einasta að álykta rétt af gefnum forsendum, heldurþjálfarþá