Hugur - 01.01.1988, Page 129
HUGUR
ATLI HARÐARSON
Hugleiðingar Páls um heimspeki og frásagnir finnast mér einstaklega
eftirtektarverðar. Heimspekingar sem fást við hugtakagreiningu gleyma því
oft að hægt er að sýna hugtökin með því að nota sögur eða dæmi, sem gera
ritsmíðar heimspekingsins aðgengilegri. Heimspekkit eru ekki minna virði
ef lesandanum er skemmt. Páll hefur algerlega réttar skoðanir á því að
heimspeki er nauðsynleg öllum mönnum og háskóli án lifandj heimspeki-
deildar, jafnvel í þröngri merkingu þess orðs sem notuð er á Islandi, er ó-
hugsandi. Það er mér mikil ánægja að Háskóli íslands hefur sterka heim-
spekideild.
Páll virðist gera góð skil verkum þeirra heimspekinga sem hann vitnar
til. Ég er ekki fróður um verk margra þessara manna og dáist ég mjög að
því hve Páll, nafni minn, er sprenglærður. Eitt er það sem mér finnst sér-
staklega lofsvert, en það er virðingin sem hann sýnir Brynjólfi Bjamasyni,
sem íslendingar standa í mikilli þakkarskuld við. Samanburðurinn á Sartre
og Brynjólfi er frábær og verður vonandi til þess að lesendur Pælinga lesi
l&a framlag Brynjólfs til heimspeki á íslandi. Það skaðast enginn af þeim
lestri.
Þótt ég sé ekki sammála Páli um kristna trú þá er ég sammála honum
um margt. En heimspeki lifir hvorki á samsöng né því að hver syngi í
einrúmi með sínu nefi. Heimspekin verður að taka til greina alla gagnrýni.
Ef enginn annar véfengir það sem heimspekingurinn segir, verður hann
sjálfur að reyna að grafa undan mistökum kenninga sinna. Markmið hans
verður að vera fullkomin viska, en þar eð leitin að henni er jafnan árang-
urslaus er heimspekingurinn ekki ólíkur ijúpnaskyttunni, sem aldrei hittir
til marks og missir því af bestu jólaréttunum, en ber þó þessi örlög sín
með karlmennsku og léttu geði. Svartsýni hjá heitnspekingum er versti
löstur. Páll Skúlason stefnir að bættri hugsun allra íslendinga og annarra
sem geta lesið verk hans. Páll er frábær hugsuður og ég vil ljúka þessum
stutta ritdómi með því að óska honum til hamingju með bókina.
Páll S. Árdal
127