Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 25

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 25
Columbus og Cabot Eftir prófessor Halldór Hermannsson “Að eiga þátt í grautargerð” er gamall og góður íslenskur talshátt- ur, sem samsvarar þeim enska “to have a finger in the pie.” Mér kemur hann í hug, þegar eg hug- leiði, hve margar þjóðir þykjast hafa átt þátt í því að finna Ame- ríku áður en Columbus gerði það. Þar eru íslendingar ásamt frænd- um þeirra Norðmönnum, írar, Walesbúar, Þjóðverjar (Pining og Pothorst, en sagt að þeir hafi verið á dönsku skipi, svo að Danir vilja teljast með), Feneyingar, Portúgal- ar, Arabar og jafnvel Pólverjar (Scolvus, sem óefað er bygt á mis- ritun). En þegar til kastanna kem- ur að færa jafnvel sæmilegar líkur, hvað þá heldur sannanir, fyrir þessu, þá stendur hnífurinn í kúnni hjá öllum nema íslendingum. Það uiun óhætt að segja, að um fund þeirra efist nú enginn málsmetandi rnaður lengur. En þá kemur annað atriði til greina, sem er allmikið deilumál, hvort nokkurt samband sé milli Vínlandsferðanna og Colum- busar eða John Cabots. Heimildir finnast engar um það, svo ábyggi- iegt sé, og ályktanir manna þar að lútandi eru því, mestmegnis bygðar á tilgátum og líkum einum, og hafa sumir fullyrt meira um þetta en þeir hafa getað staðið við, þegar á átti að herða. Það er einmitt þetta mál, sem eg mtla að gera að umræðuefni hér, hvort hægt sé að finna þess merki, að Columbus eða Cabot hafi orðið fyrir nokkrum áhrifum frá íslandi. Efnið er erfitt viðfangs, ekki síst vegna þess að margt er óljóst í ævi þessara tveggja manna. Er því nauðsynlegt að rekja nokkuð sögu þeirra fram að þeim tíma, er þeir fóru fyrstu ferðirnar vestur um haf. I. Þótt okkur nútíðarmönnum kunni að þykja það næsta ótrúlegt um svo frægan mann sem Columbus er í sögunni, féll nafn hans nálega í gleymsku á næstu áratugum eftir dauða hans. Á þeim árum fengust mjög margir við landafundi, og kastaði það skugga á nafn hins mikla manns, enda hafði hann átt marga óvini, sem gerðu lítið úr af- rekum hans og ófrægðu hann. Til þess að bjarga nafni Colum- busar frá gleymsku og færa vörn gegn sökum þeim, er hann var bor- inn, ritaði launsonur hans, Ferdin- and Columbus ævisögu föður síns á spönsku um 1539. Frumritið er glatað, en bókin var þýdd á ítölsku og kom fyrst út í Feneyjum 1571. Líka ritaði spánskur biskup, Bartho- lomé de las Casas, nokkru síðar sögu Vestindía og sagði hann þar frá ævi Columbusar, enda var hann mikill vinur þeirra ættmanna. Hann bygði frásögu sína að nokkru leyti á ævisögunni eftir Ferdinand, en báðir höfðu þeir aðgang að ritum og skjölum, sem Columbus hafði látið eftir sig. Þó ævisagan væri tvisvar prentuð á ítölsku á 16. öld, var hún um langan tíma lítið þekt, og sagan eftir Las Casas kom fyrst
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.