Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Side 32

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Side 32
8 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA sama breiddarstigi og England, og ef menn kæmust þangað, mundi auðvelt að fylgja ströndinni í suð- vestur alt til Cathay, Kryddeyj- anna (Molucca eyjanna) og Ind- lands. Þetta var í samræmi við ferðabók Marco Polo’s og fyrnefnt rit Pierre d’Ailly’s. Hvort Cabot var sjómaður, kaup- maður eða verslunarerindreki i þjónustu annara, er ekki víst, enda gátu menn verið þetta alt í einu á þeim tímum. Hann virðist hafa verið vel að sér í siglingafræði og landfræði eftir þeirra tíma mæli- kvarða, ennfremur að hafa verið vel lesinn, vel máli farinn, og haft brennandi áhuga á málefni sínu, verið hagsýnn hugsjónamaður. Það er í mæli, að hann hafi fyrst leitað fyrir sér á Spáni og í Portú- gal um styrk til vesturferðar, en enga áheyrn fengið. Líklega í kring- um 1484 mun hann hafa farið til Englands og sest að í Lundúnum, en síðar flutt til Bristol. Sá bær var á miðöldunum mikill verslunar- staður, og íbúar hans kunnir að miklum áhuga og atorku. Suður á bóginn versluðu þeir aðallega við Portúgal, og norður á bóginn við ísland. Ýmsar kaupmannaættir (Jays, Thornes, og Eliots) versluðu við bæði löndin. Það er .því mjög líklegt, að sögur úr suðri og norðri, um landafundi, hafi borist þangað, enda fengust Bristolsbúar sjálfir við landaleitir. John Jay hinn yngri mun hafa farið vestur í haf 1480 til að leita Brasyl-eyjunnar (írskt orð, sem þýðir Sælueyja), verið nokkra mánuði í þeirri ferð, en ekkert fundið. Líklega hafa fleiri slíkar ferðir verið farnar, þó menn viti eigi gjörla nú, enda hafa glat- ast margar heimildir og skjöl við- víkjandi sögu borgarinnar; hafa sumir haldið því fram, að Cabot hafi tekið þátt í þeim ferðum, en það er óvíst. En þessar ferðir hafa að líkindum verið allar í suð- vestur og því aldrei borið neinn árangur. Cabot hefir auðvitað leitað styrks hjá Englendingum til að koma fyr- irætlunum sínum í framkvæmd, en litla áheyrn fengið. En svo kom íregnin um fyrstu ferð Columbusar, og þá komst skriður á málið, og loks gefur Hinrik VII. honum einka- leyfi 5. marz 1496 til að sigla undir ensku flaggi með fimm skipum og tilhlýðilegum skipshöfnum til hvaða landa og stranda sem vera skal í austur, vestur og norður, og taka til eignar í nafni konungs heiðin lönd, áður ókunn kristnum mönn- um. Ekki er suðurátt nefnd í bréf- inu og er það líklega gert til þess að ekki sé gengið á rétt Spánverja. Cabot mátti ekki taka stefnu sunn- ar en breiddarstig Englands, en fyndi hann þar lönd, gat hann fylgt strandlengju þeirra suður eða norð- ur eftir, ef aðrir kristnir menn hefðu ekki tekið þær til eignar. James A. Williamson, enski sagnaritarinn, sem hefir skrifað mjög fróðlega bók um ferðir Cabot- anna, er þeirrar skoðunar, að bak við þessi ákvæði leyfisbréfsins liggi einmitt vitneskja um Vínland og Markland; Bristolsbúar hafi vitað, að þarna vestur frá lá land, sem náði langt norður eftir, norður fyrir breiddarstig Englands, og þeir get- ið þess nú til, að þetta mundi vera meginland Asíu, og því líka na langt suður eftir, og þetta land hafi konungur viljað tryggja sér.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.