Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 107

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Page 107
E. PAULINE JOHNSON 83 við, að hún væri til. Það var tengda- móðir hennar. Þótti henni sonur sinn hafa gjört nafni sínu, stöðu og ætterni ófyrirgefanlega smán með því, að giftast hvítri konu. Gamla konan kvað hafa verið ríkilát, skap- mikil og afar fastheldin við forna þjóðsiði. Þoldi hún illa þessa nið- urlægingu sonar síns. Eftir að Mrs. Johnson átti fyrsta barnið, lá hún lengi veik og var ekki hugað líf. Daginn, sem barnið fæddist, sat maður hennar einn inni hjá henni í rökkrinu um kvöldið. Alt í einu opnuðust dyrnar hljóð- lega, og dökkur skuggi leið inn gólfið og kraup við rúmstokkinn. Móðir Indíánahöfðingjans var kom- in til að blessa yfir sonarbarnið og bjóða frið. — Hún lagði litla skrautsaumaða barnaskó á rúmið og hvarf svo út aftur. En friðinn og fyrirgefning- una skildi hún eftir eins og ilm í kringum veiku konuna og son henn- ar. Litlu skórnir voru gamalt erfða- fé, og þá báru aðeins kynbornir höfðingjar Mohawkanna. Flutti hún skömmu síðar heim til sonar síns og tengdadóttur. Áhrif hennar seg- ist Pauline Johnson aldrei geta full- þakkað. Hún segir að amma sín hafi mótað hugsunarhátt sinn; en einhver undarlegur ótti hafi sér þó altaf staðið af þessari mikilúðgu konu. Vafalaust hafa heimilisáhrifin glætt og aukið ímyndunarafl þessa gáfaða óvenjulega skáldhneigða barns. Amma hennar mun hafa kent henni ungri, að leggja eyrun við jörðina og hlusta eftir pípu- blæstri Pans. Líklegt er og að hún hafi fyrst allra kent Pauline virð- ingu fyrir skáldskap, því maður hennar, afi Pauline, hafði verið nafnkendur Mohawk söngvari og frábær mælskumaður svo ef til vili hefir henni komið eitthvað af orð- snildinni þaðan. Heimilið var fult af bókum og innan við tólf ára aldur, hafði Pauline lesið og lært kvæði eftir ýmsa bestu höfunda eins og t. d. Scott, Longfellow, Byron, Shakespeare, Meredith og fl. Má af því sjá, hve snemmþroska hún var, enda byrjaði hún ung að yrkja. Skólamentun hennar mundi nú á dögum vera talin lítil; en hún slapp þá líka við, að sitja á skólabekk, þar til sál hennar var orðin að flat- köku, sem engin gerð gat komist í um aldur og ævi. — En fjölmentuð og víðlesin varð hún, eins og kvæði hennar benda til. Á unglingsárun- um orti hún mikið, en ekkert af þeim kvæðum kom á prent. Hún var orðin fleyg og fær skáldkona. þegar fyrstu kvæði hennar komu fyrir almennings augu í tveim New York ritum “Gems of Poetry” og “Independant,” einnig í tveim Toronto-ritum “The Week” og “Saturday Night.” Vægast sagt, ráku menn þá upp stór augu yfir kvæðum þessarar óþektu Indíána- stúlku. En ljóðsnild hennar náði ekki föstum tökum á hugum manna, fyr en viðurkenningin kom utan- lands frá, — heiman frá Englandi. — Theodore Watts-Dunton, enskur mentamaður og rithöfundur, skrif- aði grein árið 1889 í London-tíma- ritið “Athenæum” um “Songs of the Great Dominion,” var það ný- útkomið kvæðasafn, sýnishorn af canadiskri ljóðagjörð á þeim dögum. Watts-Dunton skrifaði mjög hlýlega um bókina, en fremsta og frumleg- asta skáldið taldi hann Pauline
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.