Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1941, Side 159
ÞINGTÍÐINDI
135
Fyrsti liður var lesinn og saraþyktur I
einu hljóði.
Annar liður var lesinn og ræddur um
hríð. Ásmundur P. Jóhannsson og Friðrik
Kristjánsson gjörðu breytingartillögu um
að þetta ákvæði nái aðeins til eins árs.
Ölafur Pétursson og Arnljótur Olson gjörðu
breytingartillögu við breytingartillögu að
þessi liður sé feldur ör. Urðu nú enn um-
ræður um málið og tóku þessir til máls:
Séra Guðm. Árnason, Gunnbjörn Stefánsson,
Á. P. Jóhannsson, Sveinn Pálmason og séra
Rúnólfur Marteinsson. Var loks borin upp
breytingartillaga ólafs Péturssonar um að
sleppa umræddum lið úr nefndarálitinu.
Var hún samþykt.
priðji liður var lesinn og ræddur. Á-
kveðið var að vísa þessum lið til fjármála-
nefndar, samkvæmt tillögu Á. P. Jóhanns-
sonar og J. Húnfjörðs. Nefndarskýrslan
slðan samþykt með áorðnum breytingum.
Teljarar gáfu nú þá skýrslu að Dr. Sig.
Júl. Jóhannesson hefði hlotið meirihluta at_
kvæða til varaskrifara embættis. Var hann
þvl lýstur rétt kjörinn til þess embættis.
Til féhirðis hafði verið útnefndur Árni
Eggertson. Var hann kosinn gagnsóknar-
laust. Varaféhirðir var kosinn Ásmundur
P. Jóhannsson gagnsóknarlaust. Guðmann
Levy var kosinn fjármálaritari gagnsókn-
arlaust. Sveinn Thorvaldson, M.B.E., var
kosinn varafjármálaritari gagnsóknarlaust.
ólafur Pétursson var kosinn skjalavörður
gagnsóknarlaust. Grettir L. Jóhannsson
var kosinn yfirskoðunarmaður til tveggja
ára án gagnsóknar.
Guðmann Levy lagði fram skýrslu út-
gáfunefndar:
Álit útgáfunefndar
1. Otgáfunefnd leggur til að Ttmarit
Pjóðræknisfélagsins sé gefið út á næsta ári
I svipuðu formi og það sem verið hefir.
2. Að framkvæmdarnefndinni sé falið að
ráða ritstjóra þess, og sjá að öðru leyti
um útgáfu þess.
3. pingið vottar auglýsingasafnanda, hr.
Á. P. Jóhannssyni þakklæti sitt fyrir fram-
úrskarandi dugnað við söfnun auglýsinga
I slðasta hefti Tímaritsins.
4. par sem nóg upplag er til að “Baldurs-
brá,” leggur nefndin til að áhersla sé lögð
á að selja það, áður en ráðist er I frekari
útgáfu
Guðmann Levy
Mrs. Erickson
B. E. Johnson
C. Indriðason
Mrs. H. F. Danielsson.
Var ákveðið að taka skýrslu þessa til
athugunar lið fyrir lið, samkv. tillögu Ara
Magnússonar og Arnijótar Olsons.
Fyrsti liður var lesinn og ræddur af
þeim Ara Magnússon, Nikulás Ottenson og
H. Hjaitalín, og síðan samþyktur sam-
kvæmt tillögu S. S. Laxdal og H. Hjaltalín.
Annar liður var lesinn. Ari Magnússon
og Arnljótur Ólson gjörðu breytingartillögu
við þennan lið þess efnis að þinginu sé
falið að kjósa nefnd til að sjá um útgáfu
Tlmaritsins, ásamt ritstjóra. Breytingar-
tillagan var borin upp og feld. Liðurinn
var síðan samþyktur samkvæmt tillögu séra
Guðm. Árnasonar og J. Húnfjörðs.
priðji liður var lesinn og samþyktur.
Fjórði liður sömuleiðis, og svo skýrslan
I heild sinni.
pá var gengið til kosninga um menn I
Sögunefnd. Var samþykt að taka fyrir
aftur þriðja liðinn I áliti sögunefndar
þingsins. Var samþykt breytingartillaga
frá Árna Eggertssynl og Thor Marvin um
að 11 manna nefnd sé kosin til að hafa
söguritunarmálið með höndum. Hlutu
þessir kosningu:
Séra Philip Pétursson (Tilnefndur fyr á
þinginu).
Séra Guðmundur Árnason (Tilnefndur fyr
á þinginu).
Mrs. Hannes Lindal.
Séra Egill H. Fáfnis.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson.
Soffonias Thorkelsson.
Sveinn Pálmason.
Einar Páll Jónsson.
Dr. Richard Beck.
Séra Rúnólfur Marteinsson.
GIsli Johnson.
Hinn síðastnefndi skoraðist slðan undan
kosningu I nefnd þessa.
1 Minjasafnsnefnd voru endurkosnir
Bergþór E. Johnson, Davlð Björnsson og
S. 'W. Melsted.
í nefnd til að safna þjóðlegum fræðum
voru kosnir: séra Sigurður ólafsson séra
Guðm. Árnason, J. J. Blldfell, Árni Magn-
ússon, séra Egill H. Fáfnis.
Rithöfundasjððsnefnd var endurkosin
með þeirri breyting að Gunnbjörn Stefáns-
son skipar sæti séra Jakobs Jðnssonar.
Útnefriingarnefnd var endurkosin og
hana skipa: G. L. Jóhannsson, séra Egill
H. Fáfnis, séra Guðmundur Árnason.
Leifs styttu nefndln var endurkosln, og
skipa hana: Ásm. P. Jðhannsson, séra
Guðm. Amason og Sveinn Thorvaldson.
Var fundi síðan frestað til kl. 8 e. h.