Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 30

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 30
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201230 SJÁlfStJÓrnUn barna og Ungmenna fyrir unglinga sem ætlað er að efla getu þeirra til að stjórna eigin tilfinningum, hugsun og hegðun. Algengt er að slík verkefni standi yfir í nokkrar vikur eða mánuði þar sem ungmennin setja sér ákveðið markmið, gera áætlun um hvernig þau ætla að ná því markmiði, fylgjast með að þau nálgist markmið sitt og gera áætlun um hvernig þau bregðist við ef áætlunin stenst ekki. Áður en starfinu lýkur er lagt mat á hvort mark- miðinu var náð (Larson og Angus, 2011). Rannsóknir sem leggja mat á áhrif slíks starfs á þroska ungmenna eru aftur á móti stutt á veg komnar. Þó gerðu Larson og Angus (2011) könnun á því hvort og hvernig skipulagt starf í ellefu verkefnum fyrir unglinga yki færni þeirra í að setja sér langtímamarkmið og ná þeim. Rannsakendurnir tóku viðtöl við rúmlega 100 ungmenni í skipulögðu starfi sem beindist ýmist að því að efla listsköpun eða leiðtogahæfni. Starfið var með ýmsum hætti, sem dæmi má nefna að í einu tilfelli skipulögðu ungmennin fjáröflun fyrir góðgerðarsamtök, gerðu áætlun um hvernig ætti að standa að henni (reiknuðu út hversu mikið kostaði að hafa fjár- öflunina, hversu miklu fé þyrfti að safna frá hverjum þátttakanda til að markinu yrði náð, o.s.frv.) og í lokin var lagt mat á hversu vel hefði tekist til. Tekin voru viðtöl við hvert ungmenni á tveggja vikna fresti í þrjá til fjóra mánuði. Höfundarnir taka fram að ekki megi alhæfa eftir niðurstöðum þessarar fyrstu rannsóknar og að nauðsynlegt sé að skoða áhrif skipulagðs starfs með vísindalegri nálgun þar sem lagt er mat á breyt- ingar á sjálfstjórnun ungmenna fyrir og eftir þátttöku í starfinu. Engu að síður gefa niðurstöðurnar til kynna að unglingar geti þróað með sér markmiðsbundna hugsun með þátttöku í starfi sem þessu og yfirfært þá færni til að leysa raunveruleg vandamál sem þeir standa frammi fyrir í sínu eigin lífi. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar- innar verða ungmennin sjálf að eiga frumkvæði að því að setja sér markmið og leysa þau vandamál sem kunna að standa í vegi fyrir að markmiðinu sé náð til þess að slíkt nám eigi sér stað. Einnig er mikilvægt að réttur stuðningur leiðbeinenda sé til staðar, það er að leiðbeinendur séu reiðubúnir til að styðja ungmennin án þess að beina þeim að lausninni. Sem dæmi má nefna að leiðbeinendur hvöttu ungmennin til að hugsa um vandamálið sem þau stóðu frammi fyrir á skipulegan hátt (til dæmis „hvað gerist ef þú velur leið A? En ef þú velur leið B?“) án þess að leiðbeina þeim beint um lausn vandans sem um ræddi (Larson og Angus, 2011). Af umræðu um sjálfstjórnun á unglingsárum má ljóst vera að þörf er á frekari rann- sóknum á sjálfstjórnun á unglingsárum, þá helst hvernig slík færni þróast og hvað stuðlar að eða heftir slíkan þroska. Ekki er síður þörf á skilningi á því hvernig sjálfstjórn- un á unglingsárum kann að vera ólík því sem gerist meðal barna og fullorðinna, en þar sem unglingar standa frammi fyrir ýmsum breytingum, til dæmis líffræðilegum, og viðfangsefnum, til dæmis ákvörðunum um hvaða stefnu þau eiga að taka í líf- inu, sem ekki verða á öðrum aldri kann svo að vera. Loks er mikilvægt að þróun kennsluhátta, skipulagðs starfs og íhlutunar sem stuðlar að sjálfstjórnun ungmenna haldi áfram og lagt sé mat á áhrif slíks starfs með rannsóknum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.