Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 50
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201250
YngStU leikSkÓlabörnin: Samfélag í leik
Í rannsóknum Løkken (2004a, 2004b) kom í ljós að eins og tveggja ára börn mót-
uðu eigin aðferðir við að taka á móti og fagna hvert öðru við komuna í leikskólann
á morgnana og voru 21% aðferðanna í eðli sínu barnslegar. Þær byggðust á sérstakri
fagnaðarathöfn sem oft var dregin á langinn. Þessar athafnir gáfu til kynna að sér-
stakar hefðir yrðu til hjá ungum börnum sem hittast reglulega yfir ákveðið tímabil.
Rannsóknarspurningar
Rannsókninni, sem hér er fjallað um, er ætlað að bæta við þekkingu á því hvernig börn
á öðru og þriðja aldursári nota líkamann til að móta félagslegt samfélag í leik í leik-
skóla. Flestar rannsóknir þar sem félagsleg mynstur í leik hafa verið skoðuð hafa verið
gerðar meðal eldri leikskólabarna. Sérstaða rannsóknarinnar og nýlunda felst í því
að sjónum er beint að upplifun ungra barna og þeirri merkingu sem þau sjálf leggja í
félagsleg samskipti sín í leik. Litið er svo á að ung börn móti eigin menningu og að þau
nálgist og skilji umhverfið út frá eigin forsendum (Pramling Samuelsson og Sheridan,
2003; Sommer, Pramling Samuelsson og Hundeide, 2010). Lengstum hafa rannsóknir
á ungum börnum beinst að algildum þáttum í þroska þeirra og hegðun. Hér verður
hins vegar sjónum beint að samskiptum barnanna og tengslum og því hvernig þau
líta á og byggja upp félagslegt samfélag sitt í leik, þ.e. fyrirbærafræði barnanna sjálfra.
Í rannsókninni er fylgst með börnum í leikaðstæðum og leitast við að lýsa, greina og
túlka athafnir barnanna í því samhengi.
Meginrannsóknarspurningin sem höfð var að leiðarljósi er þessi:
• Hvernig skapa ung börn samfélag í leik?
Eftirfarandi undirspurningar voru hafðar til hliðsjónar:
– Hvernig hefja börnin samskipti í leik?
– Hvernig viðhalda börnin leiknum?
– Hvernig koma börnin sér inn í leik sem þegar er hafinn?
AðfErð
Rannsóknin fór fram í leikskóla sem er í grónu hverfi í Reykjavík og hefur starfað í
ríflega 20 ár. Í leikskólanum voru samtals 90 börn, á aldrinum eins til sex ára, á fjórum
deildum. Þátttakendur í rannsókninni voru 20 börn á einni deild, níu drengir og ellefu
telpur, á aldrinum 14 mánaða til tveggja ára og fimm mánaða. Sex barnanna áttu for-
eldra sem voru af erlendum uppruna. Fjórir starfsmenn störfuðu á deildinni, þar af
tveir leikskólakennarar og gegndi annar þeirra stöðu deildarstjóra.
Ákveðið var að velja frjálsan leik barnanna til athugunar. Ástæðan fyrir valinu var
sú að leikur er hluti af því sem börnin skapa í sameiningu og hann þróast í samskipt-
um milli þeirra og umhverfisins. Frjáls leikur felur í sér frjálsræði fyrir börnin um val á
viðfangsefnum og félögum. Það getur því verið gagnlegt að skoða og greina mynstur
í leiknum til að fanga raddir barnanna sjálfra (Pugh og Sellek, 1996). Gagnaöflun stóð
yfir í um fimm mánaða skeið eða frá því síðla vetrar 2008 og fram eftir vori 2009.