Skírnir - 01.01.1977, Blaðsíða 73
SKÍRNIR MENNINGARSÖGULEG DÆMI 71
Annars er ekki tilgangurinn með þessum línum að halda uppi
vörnum fyrir Hallgerði. Hún er verk Njáluhöfundar og hann
um það.
Eins og þráfaldlega hefur verið tekið fram af ýmsum verður
að gera ráð fyrir að þessi dæmi í Njáls sögu séu samkvæmt eldra
lagastigi en Grágás greinir. Eins og sýnt hefur verið fram á hér
er skyldleikinn við fornar lagagreinar keltanna fyrir hendi og
mjög trúlegt að lík ákvæði hafi verið í gildi á íslandi.
Við þessar athuganir hefur verið leitað til ýmissa fornlaga,
svo sem germanskra, þar með hinna fornu franka, auk fornnor-
rænna laga og engilsaxneskra, en hin fornírsku lög hafa veitt
best svör. Það er í sjálfu sér ekkert undrunarefni.
Segja má að höfundur Njálu skrifi um konur og karla í þeim
anda sem Sigurður Guðmundsson málari orðaði á öldinni sem
leið: konan er jafnskyld karlmanninum og karlmaðurinn kon-
unni. Persónulýsingar eru jafnmerkar hvort sem um konur eða
karla er að tefla. Höfundur lýsir manneskjum og kann skil á
báðum kynjum, a.m.k. geta konur vel við unað. Þar eru kon-
urnar konur, að sjálfsögðu konur síns tíma. Þær beita ekki vopn-
um frekar en Njáll en þær koma fram málum sínum eins og
hann. Þær eru yfirtak mannlegar í mætti og vanmætti og hafa
meiri reisn yfirleitt en Njálukarlar. Amen.
1 Sturlunga saga I, Reykjavík 1946, 113—114.
2 Grágás I a 161, II 322, Kj0benhavn 1852-1883.
3 Ancient Laws of Ireland, Senchus Mor. Part II, London 1869.
4 Joyce, P. W.: Social History of Ancient Ireland II, London 1903, 17.
5 Dillon, M. & Chadwick, N. K.: The Celtic Realms, London 1973, 133.
o Ancient Laws of Ireland III, CVI—CVII. „No judicial body existed to
decree the expulsion of an individual from the community; but we
know that in similar cases an organised body, formed in accordance
with immemorial custom, could by a popular expression of universal
disapproval drive from out itself the member who repudiated the
principles upon which the whole social organism was established." Sbr.
Saxo-Grammaticus útg. Stephaniusar, Hafniæ 1644, 199. Sbr. einnig
Criminal Law and Procedure of the Ancient Hindus Compared with