Skírnir - 01.01.1977, Blaðsíða 95
SKÍRNIR
ÞEGAR AFI Á KNERRI BRÁST
93
Gunnars Gunnarssonar á Ljótsstöðum í Vopnafirði 1906. Sögn Oddnýjar
Höskuldsdóttur á Ljótsstöðum". Munu þar komnar tvær sögur, er
Gunnar sendi Oddi Björnssyni forðum.
Vert er að benda á að margar af elstu smásögum Gunnars eru um
þjóðsagnaminni eða hafa á sér þjóðsagnablæ, en þau bókmenntatengsl
eru ekki viðfangsefni þessarar greinar.
8 Þess má til gamans geta að þessi ókunni unglingur frá Islandi hefur
strax haustið 1909 fengið nafn sitt tekið í Aarhus Vejviser 1910, en þar
stendur við Faaborggade 10, 135. bls.: „Forf. Gunnar Gunnarson".
9 Gunnar Gunnarsson. Den uerfarne Rejsende. Kbh. 1927. 207.—208. bls.
to Kannað var tímabilið 21. sept. 1909—30. júní 1910, en þá var Gunnar
kominn til Kaupmannahafnar fyrir nokkru.
11 Heimild er minnisbók Gunnars Gunnarssonar um tekjur sínar og gjöld
á síðara helmingi árs 1910. Bókin er í skjala- og handritasafni Gunnars
skálds en léð greinarhöfundi af syni hans, Gunnari listmálara. Á bókar-
kápu stendur titillinn „Om Island" og hafa blöð verið rifin úr bókinni.
Sennilega hefur Gunnar upphaflega skrifað í hana fyrirlestur um Island.
Nú er fremst f bókinni dönsk þýðing Gunnars á kvæði Frödings, „Jant-
blig“, er hann nefnir „Pigeblik".
Bókhaldið hefst 8. júní og lýkur 11. des. 1910. Þar hefur Gunnar frá
degi til dags fært inn tekjur sínar og gjöld, jafnvel hin smæstu upp á
einn eyri. Til hliðar við tekju- og útgjaldadálkana standa skrifuð nöfn
manna, blaða, tímarita og stofnana. Munu það einkum vera þeir aðiljar,
sem hann hafði bréfaskipti við.
Þótt bókin sé fáorð er hún ómetanleg heimild um hálft ár í lífi ungs
manns, er hafði sett sér það mark að lifa eingöngu af ritstörfum á
framandi máli.
12 Leikritið Dr. Randolf er varðveitt í handritasafni Gunnars skálds og
léð greinarhöfundi til afnota af Gunnari sjálfum.
13 „Sandheden om Norden, sagt usentimentalt af Gunnar Gunnarsson".
Berlingske Aftenavis 23. des. 1938.
u Gunnar hélt þó áfram að senda Afholdsdagbladet Reform efni og til
ársloka birtust þar eftir hann eftirtaldar króníkur: „Rids“ 25. júlí 1910,
„Island" 16.—17. ágúst 1910 (endurprentuð í Dansk Budstikke 16., 23.
og 30. okt. 1910) og „Efteraar" 1. nóv. 1910.
15 Heimild: Minnisbók Gunnars Gunnarssonar um tekjur og gjöld 8. júní
til 11. des. 1910.
18 Hið eina, sem fundið verður eftir Gunnar Gunnarsson í Síindagsbladet
til loka 21. árg., þ. e. 29. sept. 1912, er smásagan „Paa Fjeldveje", sem
birtist í blaðinu 14. og 21. apríl 1912, hvort sem hún hefur legið hjá
ritstjóranum nærri tvö ár eða um aðra sögu er að ræða en þá, sem getur
i bréfinu til Skjoldborgs.
ii í viðtali við greinarhöfund 29. mars 1975.
18 í viðtali við greinarhöfund 7. júní 1975. Skv. því hefur Gunnar annað-