Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 91

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 91
Á d r e p u r TMM 2012 · 4 91 ar birtust fyrst á íslenskum vefmiðlum. Enn gat ég ekki séð hvenær mælingar á íslenskum typpum fóru fram né hver safnaði þeim saman eða hver orsök þess var að íslenskir karlmenn fóru sjálfir að mæla typpi sín. Undir töflu vefsvæðisins var ekki getið neinna heimilda. Á forsíðu Heimsgagnabanka meðaltyppalengdar mátti þó finna valmöguleikann „uppruni gagna“. Þar var vísað á 84 mismunandi heimildir fyrir uppruna gagna á vefsíðunni. Meðal heimilda má nefna: Studies on self-esteem of penile size in young Korean military men. Asian Journal of Andrology, 5, 185–189. The Elle/MSNBC.com sex and body image survey. Elle, pp. 111–113. Magna-RX. (2005, March). Does size really matter to your lover? More than you can possibly imagine! For Him Magazine, p. 117.10 Ég held ég geti fullyrt að engin þessara heimilda gaf til kynna að þar væri að finna upplýsingar um meðaltyppalengd íslenskra karla. Uppruni þeirra upplýsinga var mér enn ókunnur. Á heimasíðunni var einnig hægt að velja „hafa samband“ og fékk maður þá uppgefið tölvupóstfangið averagesizedatabase@hotmail.com. Undir póst- fanginu stóð svo: Niðurstöður rannsókna eru teknar saman á þessu vefsetri; það skal þó tekið fram að ekki er unnt að greina frá sumum heimildum vegna diplómatískra deilna eða orðspors vísindastofnana.11 Ég ákvað samt, þó að það gæti þvælt persónu mína inn í diplómatíska milliríkja- deilu, að senda Heimsgagnabankanum tölvuskeyti sem hljóðar svo í íslenskri þýð- ingu: Kæri fulltrúi Heimsgagnabanka meðaltyppalengdar Í nýlegri grein eftir Richard Lynn, fyrrverandi prófessor við Ulsterháskóla, sem nefnist Rushton’s r-K life history theory of race differences in penis length and circumference examined in 113 populations og birtist í tímaritinu Personality and Individual Differences, er að finna lista yfir meðaltyppastærðir í 113 löndum. Herra Lynn tekur fram að upplýsingar sem hann styðst við sé að finna á vefsvæði ykkar, everyone.com/worldpenissize. Í þessum upplýsingum kemur fram að meðaltyppastærð Íslendinga sé 16,51 cm. Þar sem ég er Íslendingur hef ég áhuga á að vita eftirfarandi: Á hvaða rannsókn eru upplýsingar um meðaltyppalengd Íslendinga byggðar? Virðingarfyllst, Bergur Ebbi Benediktsson Bréfið sendi ég 2. október 2012 en hef enn ekki fengið svar. Við erum það sem við lesum og heyrum Þegar upp er staðið finnst mér eins og ég hafi tekist á hendur ferðalag dagana 30. september til 2. október 2012 og að ég þurfi að gera þetta ferðalag upp. En hvaða ályktun er hægt að draga? Það merkilegasta við þetta allt saman er kannski sú kald- hæðnislega staðreynd að þrátt fyrir allt þá er typpalengd, sama hvaða merkingu við
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.