Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 116
D ó m a r u m b æ k u r 116 TMM 2012 · 4 lyfja, en þó umfram allt hinni ríku sjálfseyðingarhvöt sem ungmennin fjög- ur búa yfir. En hvað af því eru þá ofskynjanir? Húsið og íbúar þess, vænt- anlega, og þar með sú lausn að hinar óþekktu óvættir séu afleiðingar tilrauna hans eða sifjaspellsins, en það kemur ekki í veg fyrir að fjórmenningarnir far- ast (þó Vigdís lifi af er hún illa sködd- uð). Eru þau þá fórnarlömb hvert ann- ars? Eða sjálfra sín – eða græðginnar, hrunsins og þess samfélags sem skapaði fullkomnar aðstæður fyrir þetta? Í því ljósi má sjá landið sem tákn fyrir þjóð- ina og hvorttveggja sem öfl eyðilegging- ar. Vissulega bendir ýmislegt til þess að túlka megi söguna á þennan hátt, og afgreiða hana þannig sem táknsögu um hrunið, en slíkar afgreiðslur eru óþarf- lega vinsælar þegar kemur að bók- menntagreinum afþreyingarinnar, sér- staklega vísindasögum, fantasíum og hrollvekjum. Enda hafa höfundar slíkra oft nýtt sér formúlur formanna til að koma á framfæri boðskap. En það er hægt að koma boðskap á framfæri án þess að skapa honum ein- feldningslegan táknbúning og fæst þeirra formúluverka sem ná ‚bók- menntalegu‘ máli fella sig á einfaldan hátt að táknrænni yfirfærslu af þessu tagi. Enda væri þá ekki mikið varið í þau í sannleika sagt. Það sem gerir hrollvekjuna að því eðla formi sem hún er, er einmitt hæfileiki hennar til að hafa hamskipti og bregða sér í allra kvikinda líki. Þetta hefur verið mikil- vægur þáttur hennar allt frá upphafi í gotnesku skáldsögunni á átjándu öld. Strax þá komu fram sögur sem skiptu sér í grófum dráttum í tvo flokka; ann- arsvegar eru sögur sem gefa sér að hið yfirnáttúrulega sé til, og hinsvegar sögur sem hafna hinu yfirnáttúrulega og skýra alla dularfulla atburði út á raunsæjan hátt. Bent hefur verið á að slíkar skýringar séu iðulega nokkuð hæpnar, en það kemur ekki í veg fyrir að búlgarski bókmenntafræðingurinn Tzvetan Todorov hafi smíðað kenningu byggða á þessum aðskilnaði.8 Í leit sinni að eðli fantasíunnar eða hins fantast- íska, kemst Todorov að þeirri niður- stöðu að það búi í efanum, hikinu sem kemur á lesandann – og / eða er byggt inn í verkið – að lestrinum loknum. Ef sagan endar þannig að lesandi getur ekki verið viss um hvað í raun og veru gerðist er kjarna fantasíunnar náð að mati Todorovs. Og einmitt þannig er Hálendið. Þó það geti verið þægileg lausn að túlka verkið sem táknsögu um gróðærið og hrunið er sú skýring of billeg – án þess þó að vera fyllilega óréttmæt. Það er einfaldlega svo margt annað sem sagan tekur til, meðal annars fyrrnefnd tök á og átök við íslenska náttúru og íslenska menningu. Vissulega má segja að átökin um íslenska náttúru og hin íslenska menning eins og hún birtist í þjóðarsál- inni tengist græðgisvæðingunni og kreppunni á ýmsan hátt, en hvort- tveggja hefur þó víðari skírskotanir. Og það eru þessar víðari skírskotanir sem koma í veg fyrir að sagan felli sig fylli- lega að einföldum útskýringum; Hálendið má fullt eins lesa sem hreina hrollvekju með kreppuívafi (hrollvekjan, líkt og glæpasagan, hefur löngum tekið á ýmsum þjóðfélagsmálum), og sem hrollvekjandi myndhverfingu um kreppuna. Hver er til dæmis staða Hrafns innan sögunnar? Í ljós kemur að hann er illa skaddaður – er hann mögu- lega sökudólgurinn, sá sem stendur á bakvið alltsaman? Hann er bílstjórinn og það er hann sem villist út af vegin- um. Og hvað með hjónin á bænum? Gætu þau ekki verið draugar, eða fólk sem hefur gengist á hönd tröllum eða álfum eins og gerist í þjóðsögunum?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.