Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 127
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 4 127 Með sama hætti og merkidagarnir skilgreina tímann þá flakkar sögumaður á milli staða sem skilgreina rýmið fyrir henni. Hún nemur sífellt staðar á stöð- um sem helgaðir eru rithöfundum, líkt og hún sé að máta sig við þann hóp sem hún tilheyrir. Hún veltir vöngum yfir húsum skálda og listamanna og þá sér- staklega hvers vegna eingöngu hús karl- manna séu opnuð upp á gátt sem söfn (198). Það tengist svo aftur vangaveltum um rými konunnar. Amma sögumanns bendir henni á að fjósið hafi verið rými konunnar, þar hafi verið mest næði (115).5 Þegar sögumaður fer til Englands, á slóðir rithöfundarins Williams Words- worth, þá er það systir hans Dorothy sem verður henni innblástur. Dorothy þessi hélt dagbók sem sögumanni finnst „ótrúlega spennandi þótt hún sé eigin- lega ekki um neitt“ (121). Eftir lestur dagbókarinnar finnur hún sig knúna til að heimsækja hús systkinanna, „grafast fyrir um sambúð þeirra, vita hvort af húsakynnunum mætti ráða hvers eðlis nánd þeirra var“ (122). Hugsanir sögu- manns um samband hennar við bróður- inn Ugla eru rauður þráður í gegnum frásögnina og það er nánd Wordsworth- systkinanna sem heillar hana frekar en höfundarverk skáldsins: Og systirin skrifar í dagbókina sína að þau hafi legið saman í móanum systkinin og hlustað á andardrátt hvort annars og á vatnið í loftinu og að hann hafi sagst ímynda sér að svona yrði það í gröfinni, í algjöru næði að hlusta á kyrrð jarðar- innar í nánd við sína nánustu. (129) Sögumaður hefur flókna afstöðu til nándar milli systkina og efast um að þessi hugmynd gangi upp, Dorothy hafi verið of háð bróður sínum og of háð nándinni, „þá er kannski stutt í þung- lyndið“ (130). Ferðir sögumanns um merkistaði skálda tengist leitinni að samastað. Fyrir rithöfund eins og hana er heimilið er ekki bara staður til að búa á, heldur vinnustofa og staður andrýmis. Það er önnur merking orðsins jarðnæði, ekki eingöngu staður til að búa á heldur stað- ur til að hugsa á og þroskast á. Þriðja merkingin er svo hin samfélagslega sem sögumaður víkur ítrekað að, tenging mannfólksins við landið og við jörðina, ábyrgð þess gagnvart náttúrunni og heildinni. Þessi leikur að orðinu jarð- næði dregur fram tvöfalt eðli bókarinn- ar. Annars vegar hugmyndaauðgi og frjó og skapandi tengsl við hefð og sögu en hins vegar léttleikandi meðferð Oddnýj- ar Eirar á tungumálinu, orðunum sem eru efniviður hennar. Megi hún smíða úr þeim sem oftast. Tilvísanir 1 Auk þeirra sem vísað er sérstaklega til hér á eftir má nefna þrjár vandaðar umfjallanir: Auður Aðalsteinsdóttir. „Uppdráttur að samfélagi“, Spássían 13. desember 2011. Sótt 17. október 2012 á http://spassian.is/grein- ar/2011/12/uppdrattur-ad-samfelagi/; Björn Þór Vilhjálmsson. „Ritdómur um Jarðnæði“, pistill f luttur í Víðsjá 15. desember 2011. Sótt 13. október 2012 á http://www.ruv.is/ frett/bokmenntir/ritdomur-um-jardnaedi; Guðrún Lára Pétursdóttir „Milli nándar og næðis“, vefsíðan Druslubækur og doðrantar 20. desember 2011. Sótt 13. október 2012 á http://bokvit.blogspot.com/2011/12/milli- nandar-og-nis.html. 2 Soffía Auður Birgisdóttir. „Fínstillum ó, næmiskerfið“, Tímarit Máls og menningar (maí 2010): 124–129, hér bls. 127. 3 Davíð K. Gestsson. „Jarðnæði“, viðtal við Oddnýju Eiri Ævarsdóttur. Vefsíðan Sögu- eyjan Ísland. Sótt 17. október 2012 á http:// www.sagenhaftes-island.is/bok-manadarins/ nr/3285. 4 Sjá til dæmis: Sigurður Gylfi Magnússon, Menntun, ást og sorg: Einsögurannsókn á íslensku sveitasamfélagi 19. og 20. aldar. Sagnfræðirannsóknir 13 (Reykjavík: Sögu- félag, 1997).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.