Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 138

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 138
D ó m a r u m b æ k u r 138 TMM 2012 · 4 komleikanum ofurselt. En frá sjónarhóli skáldsins breytir það ekki því að okkur stendur til boða hinn stundlegi fögnuð- ur, hin ljómandi augnablik, hverfular stundir upplifunar og skynjunar, þegar ljóðorkan streymir til okkar. Þökk sé hinum lofsverðu eiginleikum manns- hugans innsæinu, sköpunargáfunni, túlkunarmættinum og minninu. Ljóð Sigurðar Pálssonar hafa annan tilgang en að afhjúpa, berstrípa, afhelga. Þau smætta ekki tilveruna og einfalda hana. Þau miklu frekar stækka hana og jafnvel helga á nýjan og ferskan hátt. En Sigurður Pálsson er enginn blindur feg- urðardýrkandi, langt því frá. Hann er fegurðarunnandi. Það er allt annað. Í ljóðlist hans er skýr munur á hörmung- um heimsins og dýrð lífsins og hann fjallar af næmi um hvort tveggja. Skáldið flýr ekki ljótleikann. Það einfaldlega snýst gegn honum. Snilldarleg eru ljóðin í Ljóðorkulind þar sem skáldið lætur æðstu táknmyndir veraldlegs ríkidæmis, æðstu táknmyndir efnislegrar en dauðr- ar fegurðar taka til máls og mótmæla. Demantarnir hafa fengið nóg af ójöfnuði og óréttlæti mannanna sem birtist í því að þeir skreyta alltaf sama fólkið, hóp fárra útvalinna. Þeir hafa ákveðið að hætta að sýna hörku, linast og leka niður á jörðina. Gullstangir heimsins eru búnar að fá sig fullsaddar af því að liggja í lokuðum, myrkvuðum kjöllurum. Þær vilja komast út í sólskinið til fólksins og vekja gleði þess og hrifningu. Því jafnvel þeim er ljóst að fólkið sjálft og gleði þess er margfalt verðmætara en þær. Sigurður Pálsson er eins og fram hefur komið ófeiminn við að láta í ljós aðdáun sína. En hann leynir heldur ekki andúð sinni. Í fyrsta ljóðaflokki sínum Ljóðvegabókunum beindi hann stund- um óvæginni gagnrýni að hugsunar- hætti og gildismati í samfélaginu sem honum féll ekki við og talaði þá af tölu- verðum skaphita. Nefna má hlutann Á hringvegi ljóðsins í bókinni Ljóð vega menn þar sem skáldið hefur upp raust sína gegn smáborgaraskap og andlegum doða, talar um „helvíti neysluskyldunn- ar“, „sljóleika margtuggunnar“ og „feita mærð hinna efalausu“. Einnig má nefna hlutann Enn skín sólin þrjósk í sömu bók þar sem skáldið hvetur til andstöðu við vitringa auðsins og valdsins. Í næstu ljóðabókaþrennum fer minna fyrir slíkri samfélagsgagnrýni. Í Ljóðorkubókunum er hún á ný orðin áberandi. Þar ræðst skáldið gegn hvers kyns svarthvítri lífs- sýn og heimssýn, kreddufestu, heimótt- arskap, þjóðrembu, þröngsýni, niður- njörvandi einföldun á lífi manneskjunn- ar. Öllu því sem vill útiloka margbreyti- leikann, hið leyndardómsfulla í lífinu. Líklega hefur Sigurður aldrei ort með eins beinum hætti um þjóðfélagsástand í samtímanum og í annarri bók Ljóð- orkuflokksins, Ljóðorkuþörf. Þar er samfélagsgagnrýnin beitt. Ekki fer á milli mála að efnahagserfiðleikar þjóð- arinnar og sjálfsmyndarkreppa í kjölfar hrunsins eru tilefni þessara ljóða og hér er ekki bara ort um hugarfar og gildis- mat heldur nýliðna atburði. Skáldið beitir orðlist sinni gegn löstum eins og græðgi og hroka, sem það minnir á að eru ekki að ástæðulausu tvær af dauða- syndunum sjö, og skáldið er hvassyrt. Ljóðmál Ljóðstíll Sigurðar er oft mjög skemmti- lega myndrænn. Stundum er fyrst brugðið upp skýrri afmarkaðri mynd og henni leyft að standa sjálfstætt. Því næst er lagt út af myndinni. Hraðskreiður ljóslaus bíll á fullri ferð um götur borgarinnar (þannig líður mér æði oft) (Ljóðorkusvið, bls. 58).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.