Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 144

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 144
D ó m a r u m b æ k u r 144 TMM 2012 · 4 Að hann gengst ekki upp í því að brjóta annað fólk undir sig, temja það og móta það eftir eigin höfði? (161) Samstaða kvenna reynist erfiðleikum bundin. Þannig hafði það valdið vinslit- um milli Bíbíar og Laufeyjar vinkonu hennar þegar hún gagnrýndi hana fyrir að leggja námið á hilluna og fórna eigin frama fyrir eiginmanninn. Baldur Hermannsson, Batti á neðri hæðinni, er ekki eins næmur á ástandið og Bíbí. Hann stendur álengdar og virð- ir lífið fyrir sér og skilur sínum skiln- ingi, til dæmis þegar hann horfir inn um glugga á togstreitu Ríkharðs og Dórótheu um nestisbita sonarins, sem minnir hann á Tristran og Ísöndu: Þau hafa lyft höndunum yfir höfuðið á sér og skiptast á að fetta sig aftur þegar hitt beygir sig fram. Batti ályktar að þetta sé einhvers lags dans og þegar þau hafa endurtekið hreyfingarnar nokkrum sinnum fara þau að minna hann á tré sem sveigjast til og frá í vindi. /…/ Batta finnst ævintýralegt að sjá tvær fullorðnar manneskjur stíga eitthvað sem líkist frumstæðum mökunardansi í blokk- aríbúð á köldum og dimmum morgni á norðlægum slóðum í nóvember. (130–31) Batti fæst við alls konar brask við að útvega bannvöru frá útlendum sendi- ráðum og herstöðinni á Miðnesheiði. Auk þess vinnur hann sem afkastamik- ill þýðandi ástar- og glæpareyfara. Hann er þannig dæmigerður „hermangari“ en um leið aðdáandi þjóðlegra bókmennta og fær listþörf sinni útrás með því að flétta inn í þýðingar sínar háfleygum innskotum úr ljóðum íslenskra skálda sem hann hefur mætur á. Eitt brot er birt úr ástarsöguþýðingu þar sem hann hefur látið greipar sópa um ljóðið Mín er meyjan væna eftir Jónas Hallgríms- son. Karlarnir í sögunni finna miklu meiri samhljóm sín í milli en konurnar enda þótt samband þeirra Ríkharðs og Batta einkennist af gagnkvæmri tor- tryggni, jafnvel hatri. Þeir talast við í hálfkveðnum vísum og samkomulagi þeirra um sameiginlega aðgerð vindur þannig fram að hvorugur veit í raun hvað hinn hefur í pokahorninu. En aðgerð er ákveðin, og Þóroddur á að verða hluti af henni. Faðir hans verður himinlifandi, því að vinna er upphaf alls góðs: „drengir sem hanga of mikið í pilsföldunum hjá mæðrum sínum enda oftar en ekki í pilsum sjálfir.“ Og það upphefst ein dásamlegasta flétta sem sést hefur lengi á íslenskri bók og endar með því að konurnar, hvor á sinn hátt, ekki karlarnir, verða til þess að leysa Þórodd úr viðjum. Í sögunni skiptast á sögumannsfrá- sagnir og atburðalýsingar þar sem fylgt er sjón persóna á víxl, hvorrar á aðra og á umhverfið, sem þær misskilja stund- um herfilega. Lýsingarnar geta fengið á sig ýktar eða afskræmdar myndir: Ríkharður hlær hvellum hlátri og lítur til hennar trylltur á svipinn eins og ufsa- grýla, hann hefur undið upp á sig með undarlegum hætti og stórar krumlurnar virðast einhvern veginn í yfirstærð aftan við höfuðið. (67) Lýsingar á persónum, sérstaklega í upp- hafsköflunum, minna sterklega á Guð- berg Bergsson í fyrstu sögum hans: smá- smugulegar lýsingar á ósögulegum hversdagsathöfnum fólks sem segja mikla sögu: Hún reykti í myrkrinu, reri fram og sötraði kaffi sem oft var bæði staðið og kalt. Hún smjattaði þegar hún drakk heitt, smáblés og hélt um boll- ann báðum höndum: „Sei, sei.“ Stund- um var eins og hana skorti líkamlega nálægð. Þá reis hún upp og stóð þögul og álút álengdar. Horfði á myndina
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.