Blik - 01.06.1980, Page 124
Einn af kunnustu og athyglisverðustu Vestmannaeyingum á sinni tíð var
Magnús Jónsson, Sólvangi (nr. 29) við Kirkjuveg. Hann var útgerðarmað-
ur, skipstjóri, skáld og ritsjóri. Formaður var hann 33 vertíðir, „aflasæll
og farsœll“, eins og segir í merkri heimild. Hann orti undir gervinafninu
Hallfreður.
Magnús Jónsson missti konu sína, frú Hildi Ólafsdóttur, árið 1917 frá
sjö börnum, og sumum þeirra kornungum.
Blik birtir hér mynd af Magnúsi Jónssyni og börnum hans. Mynd þessa
tók Kjartan Guðmundsson, Ijósmyndar frá Hörgsholti, útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum um árabil. Myndin var tekin 1926.
Aftari röð frá vinstri:
Jón Magnússon, vinnuvélastjori, kvæntur frú Sigurlaugu Sigurjónsdóttur,
Sigurður Magnússon, verkstjóri, kvæntur frú Jóhönnu Magnúsdóttur,
Ólafur Magnússon, ritsjóri, kvæntur frú Ágústu Pedersen, Kristinn Magn-
ússon, skipstjóri, kvæntur frú Helgu Jóhannesdóttur.
Fremri röð frá vinstri:
Unnur Magnúsdóttir, var gift Hinrik heitnum Jónssyni sýslumanni í
Stykkishólmi, Magnús Jónsson, skipstjóri og ritstjóri í Vestmannaeyjum.
Sigurbjörg Magnúsdóttir, gift Axel Halldórssyni, stórkaupmanni,
Rebekka Magnúsdóttir, hárgreiðslumeistari, ógift.
122
BLIK