Blik - 01.06.1980, Side 195
boð Kaupfélagsins, þar til ráðinn
var fastur kaupfélagsstjóri.
Á fundi kaupfélagsstjórnarinnar
í Sambandshúsinu 13. nóv. 1973 var
samþykkt að auglýsa kaupfélags-
stjórastöðuna til umsóknar. Þá
sóttu þrír menn um hana. Einn
þeirra var Georg Hermannsson í
Borgarnesi, starfsmaður og trúnað-
armaður Kaupfélgs Borgfirðinga
þar. Hann var ráðinn kaupfélags-
stjóri. Hann hóf síðan starf við ára-
mótin 1973/1974. Tekið var þá til
með ötulleik og athafnahug að
endurreisa Kaupfélagið úr rústum
eftir öll þau ósköp, sem yfir höfðu
dunið á undanförnu ári. Heimildir
eru fyrir því, að þrír menn reyndust
þá kaupfélagssamtökunum alveg
sérlega vel og traustir félagsmenn.
Það voru þeir Sigurgeir Kristjáns-
son, forstjóri Olíufélagsins í
Eyjum, Jónas Guðmundsson, tré-
smíðameistari og Garðar Arason
frá Þórlaugargerði, starfsmaður
Kaupfélagsins. Þessi orð eru skráð
eftir Georg kaupfélagsstjóra úr
ræðu, sem hann hélt nokkru eftir
að hann hóf kaupfélagsstjórastarf
sitt í Eyjum: „Án þeirra forgöngu
hefði félagið ef til vill lagt upp
laupana,“ sagði hann þá.
Garðar Arason sá um rekstur
búðarinnar að Hólagötu 28, eftir að
hún var opnuð björgunar- og Iög-
regluliði til nota á umbrotaárinu,
nokkrum dögum eftir að gosið
hófst. Hann hefur ávallt reynzt
Kaupfélaginu dyggur og í alla staði
góður starfskraftur. Bogi Þórðarson
reynist kaupfélaginu nýtur þegn og
úrræðagóður, þá mánuði, sem
hann var kaupfélagsstjóri. Þá
mánuði bjó hann í Reykjavík og
greiddi þar úr fjárhagserfiðleikum
Kaupfélagsins, sem voru miklir og
vandasamir úrlausnar.
Á fyrsta aðalfundi eftir gosið
voru þessir menn kosnir í stjórn
Kaupfélagsins: Sigurgeir Kristjans-
son, Garðar Arason, Gunnar Sigur-
mundsson, Jóhann Björnsson og
Jón Stefánsson, sem setið hafði í
stjórn þess frá upphafi.
Ekki hafði Georg Hermannsson
starfað marga mánuði í kaupfélags-
stjórastöðunni, þegar hann lét
Kaupfélagið stofna svo-kallaðan
Vörumarkað. Þar eru vörur seldar
við lægra verði en almennt á sér
stað í umhverfinu. Skráð er í góðri
heimild, að Eyjabúar muni hafa
hagnazt um 6 milljónir króna á
Vörumarkaði Kaupfélagsins árið
1975 og kr. 14 milljónir árið eftir.
Þá hafði Kaupfélagið 42-43% af
heildarvörusölu í kaupstaðnum.
Vörumarkaður Kaupfélagsins leiðir
því til mikilla kjarabóta alls al-
mennings í kaupstaðnum.
Á miðju ári 1978 festi Kaupfélag-
ið kaup á húseigninni Reyni, nr. 5
við Bárustíg. Þar eignaðist Kaupfé-
lagið lóð, sem er dýrmæt því, þar
sem hún liggur fast að lóðamörkum
þess að Bárustíg 7.
BLIK 13
193