Blik - 01.06.1980, Síða 269
3. Vér tókum þá ákvörðun að leita guðs og reyna að láta vilja vorn og líf
lúta handleiðslu hans, samkvæmt skilningi vorum á honum.
4. Vér gerðum rækilega og óttalaust reikningsskil í lífi voru.
5. Vér játuðum afdráttarlaust fyrir guði, sjálfum oss og öðrum yfirsjónir
vorar.
6. Vér treystum því fullkomlega, að guð mundi lækna sérhvern veikleika
vorn.
7. Vér báðum guð í auðmýkt að losa oss við bresti vora.
8. Vér rifjuðum upp misgjörðir vorar gegn náunganum og vorum fús til
að bæta fyrir þær.
9. Vér jöfnuðum ágreining og bættum brot vort milliliðalaust, svo fram-
arlega sem það særði engan.
10. Vér iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn, og þegar út af bar, viðurkennd-
um vér yfirsjónir vorar undanbragðalaust.
11. Vér leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband
vort við guð og báðum um skilning á því, sem oss var fyrir beztu, og
mátt til að framkvæma það.
12. Vér fundum, að sá árangur, sem náðist með hjálp reynslusporanna,
var andleg vakning, og þess vegna reyndum vér að flytja öðrum alkó-
hólistum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi voru og
starfi.“
A-A samtökin voru stofnuð hér á landi 16. apríl 1954. Hér í Vestmanna-
eyjum voru þau stofnuð 16. febrúar 1969. — Þessi samtök eru „félags-
skapur karla og kvenna, sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir, svo að
þau megi leysa sameiginlega vandamál sín og séu fær um að hjálpa öðrum
til að losna frá áfengisbölinu.“ — Og svo stendur þar skráð í heimildinni:
Til þess að gerast A-A félagi þarf aðeins eitt: Löngur. til að hætta að
drekka. Og ennfremur:
„A-A samtökin eru sjálfstæð heild og óháð hvers kyns félagsskap
öðrum. Þau halda sig utan við þras og þrætur og taka ekki afstöðu til
opinberra mála.....“
Tvennt er það í samþykktum A-A samtakanna, sem vekur sérstaklega
athygli okkar. í fyrsta lagi viðurkennir mannssálin vanmátt sinn og
veiklyndi nema hún njóti styrks almættisins. í öðru lagi er lögð á það
megin áherzla að leita þessa styrks, — leita guðlegs styrks og máttar. Það er
meginþáttur mannlegs lífs. Leitið, og þér munuð finna. Knýið á og fyrir
yður mun upp lokið verða. Þetta eru hin veigamiklu sannindi, grundvöllur
og skilyrði sálarlegs friðar og farsældar. Og þetta hafa vissulega fjölda-
margir félagar hinna markverðu og veigamiklu A-A samtaka reynt og
þreifað á, þeim sjálfum og ástvinum þeirra til sannrar og guðlegrar far-
sældar. En þetta er algilt lífsins lögmál, sem varðar okkur öll. Sumir þykj-
ast því miður yfir það hafnir að skilja það eða vilja lúta því.
Þ.Þ.V.
BLIK
267