Hugur - 01.01.2015, Page 129
„Gagnrýnin hugsun“ í gæsalöppum 129
greiningu hans til grundvallar grein sinni. Það sem einkennir hins vegar grein
Butler er að hún nálgast spurninguna um gagnrýni á tilvistarlegan og verufræði-
legan hátt.
Við upphaf greinar sinnar bendir Butler á að vandkvæði umfjöllunar um gagn-
rýni felist í því að erfitt sé að tala um gagnrýni á svo almennan hátt.33 Gagnrýni
er alltaf beint að einhverju eins og t.d. orðræðu eða stofnun. Því missi gagnrýni
einkenni sitt þegar rætt er um hana án samhengis. Engu að síður telur hún að við
viljum hafa heiti yfir þessa aðferð óháð einstaka dæmum. Því þarf að nálgast hið
almenna við gagnrýna hugsun, sem sagt formið, á þvingandi hátt.34 Staldra aldrei
lengi við augnablikið þar sem hugsunin um gagnrýni er á einhvern hátt aðeins
almenn heldur minna sig ávallt á að samhengið hefur áhrif á hvað og hvernig
gagnrýnin er.
Engu að síður er það hentugt, og jafnvel nauðsynlegt, að hafa heitið gagnrýni yfir
það fyrirbæri, hugsun eða kennd að vera ekki sátt við núverandi skipan mála (og
vilja breytingar). Heiti sem vísar í eitthvað almennt, þegar aðstæður eru sértækar,
vísar út fyrir sig. Hvernig við nálgumst þetta almenna fyrirbæri er hins vegar hér
til umfjöllunar. Þurfum við að finna endanlega skilgreiningu á „flokknum“ gagn-
rýni sem við öll erum sammála um? Leið Butler er að líta á gagnrýni sem nokkurs
konar illa nauðsyn og vera meðvituð um hversu erfitt sé að ræða hana á almennan
hátt. Butler er umhugað um hvernig við mótumst í gegnum þekkingu og vald og
hvernig félagsleg tilvist skilyrðist af þessu sambandi. Hún tekur upp hugmynd
Foucaults um það að í raun kemst maður aldrei alveg að skilgreiningunni, heldur
aðeins í nálægð við hana. Þetta almenna við gagnrýni veldur því nefnilega að hún
reiðir sig á viðfangsefni sín; það samfélagslega eða sögulega efni sem tekið er til
gagnrýnnar skoðunar en þetta efni umbreytir um leið merkingu hugtaksins.35
Þess vegna er ekki hægt að tilgreina nein lögmál gagnrýninnar hugsunar, hún er
síbreytileg og þarf að taka mið af samhengi sínu – hinn almenna skírskotun til
einhvers konar gagnrýni er alltaf á einhvern hátt þvinguð; eitthvað sem erfitt er
að nefna eða tala um.
Gagnrýni eigi í greipum
Megináherslan hjá Butler er á gagnrýni sem eins konar iðju eða praxís sem í
anda Frankfurtarskólamannsins Theodors Adorno kemst hjá því að falla undir
einhvern ákveðinn flokk.36 Að sjá gagnrýni eða gagnrýna hugsun sem flokk, sem
mengi, að afmarka þetta fyrirbæri sem flýr ávallt afmörkunina, felur í sér þá hættu
að hlutgera fyrirbærið sem getur svo haft í för með sér blætisdýrkun þess hlutar.37
að skilgreina verk hennar; sem gagnrýnin fræði eða menningarfræði. Sjálf segir hún þennan skil-
greiningarvanda sýna að svið fræða eru orðin mun víðfeðmari í samfélaginu en slíkir fræðilegir
aðgreiningarrammar geti sagt til um. Sjá Butler, 1990.
33 Butler, 2002: 212.
34 Butler, 2002: 212.
35 Butler, 2002: 214 og Foucault, 2007: 42.
36 Butler, 2002: 213.
37 Butler, 2002: 213. Blæti eða fetish á ensku er hugtak úr mannfræði sem upprunalega var notað af
Hugur 2015-5.indd 129 5/10/2016 6:45:31 AM