Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 134
134 Nanna Hlín Halldórsdóttir
það að þessi hugmynd Butler um gagnrýni hefur skapað praktísk tól mætti sjá í
skoðun á forréttindastöðu (e. check your privilege) sem hefur verið áberandi síðustu
ár en slík skoðun gengur út á að gera sér grein fyrir því hvernig ólíkar breytur
eins og fötlun og litaraft geta haft áhrif á samskipti okkar án þess að við endilega
komum auga á það.58
Hlýir og styðjandi gagnrýnisvindar
Það er aftur á móti önnur gagnrýni á Butler og raunar hugmyndina um gagnrýni
(e. critique) sem vert er að skoða nánar. Hún felst í því að gagnrýnin fræði séu of
niðurrífandi og ekki nógu styðjandi (e. affirmative). Dæmi um slíka gagnrýni er
athugasemd bandaríska eðlisfræðingsins, femíníska heimspekingsins og nýefn-
ishyggjusinnans Karen Barad sem hefur enn fremur bent á að háskólasamfélagið,
einkum hug- og félagsvísindin sem segja má að hafi gagnrýnin fræði til grund-
vallar, hafi þjálfað nemendur sína svo í gagnrýnum vinnubrögðum að þau séu
þrautþjálfuð í að rífa niður röksemdafærslur, ritgerðir og menningarfyrirbæri án
þess að huga nokkurn tímann að því hvaða þýðingu slíkt niðurrif hefur.59 Þessi
„gagnrýni“ virðist öðrum þræði beinast að Butler sem, sérstaklega á fyrri hluta
fræðiferils síns, lagði mikla áherslu á það sem grefur undan eða hið niðurrífandi
(e. subversive) en undirtitill Kynusla er Femínismi og niðurrif sjálfsmyndar (e. Fem-
inism and the Subversion of Identity).60 Hið niðurrífandi rímar í raun vel við hug-
myndir Butler um gagnrýni þar sem kjarni hugmyndarinnar felst í því að grafa
undan þeim þekkingarramma sem býr til og endurskapar stöðluð kynjahlutverk.
Hin niðurrífandi aðferð hennar er í raun frekar til grundvallar sköpun nýrrar
sjálfsverumótunar af margvíslegum toga. Niðurrif losar úr læðingi sköpunarmátt
einstaklinga. Hún er hins vegar frekar varkár í því að nefna nýjar hugmyndir í því
samhengi því hún vill ekki boða forskriftir varðandi það hvernig fólk eigi að vera.
Barad er meðal upphafsfólks þess sem kalla mætti á íslensku ný-efnishyggju (e.
new materialism) og leggur mikla áherslu á styðjandi (e. affirmative) iðju, þ.e. iðju
sem viðurkennir og játar tiltekin fyrirbæri. Hið styðjandi inniheldur alltaf þegar
ákveðin gagnrýnin viðhorf og á því alls ekkert sameiginlegt með þeirri jákvæðu
hugsun (e. positive thinking) sem að miklu leyti hefur einkennt ráðandi hugmynd-
ir um hvernig taka eigi mótlæti.61 Hvernig maður meðhöndlar gagnrýnina er
andi sjálfsmynd hverrar manneskju er og að þekkingarheimur hennar skarast eflaust við marga
þekkingarheima. Þó að mikilvægt sé að huga að staðsetningu þá þýði það ekkert endilega að
maður geti ekki talað í nafni fólks af öðrum uppruna en maður sjálfur, heldur fer það eftir því
samhengi sem maður talar í. Alcoff, 1991.
58 Skoðun á forréttindastöðu spratt upp úr femínískri orðræðu í akademíu en sást fyrst á samskipta-
miðlinum shrub.com árið 2006 samkvæmt Hadley Freeman, fjölmiðlakonu á enska fréttamiðlin-
um Guardian. Þó að fyrirbærið sé að miklu leyti samþykkt sem ágæt leið til þess að skoða eigin
mótun þá hefur það einnig verið gagnrýnt, t.d. fyrir að vera niðurrífandi með því að setja pólitísku
áhersluna fyrst og fremst á það að skapa sektarkennd. Sjá Freeman, 2013.
59 Barad, 2012: 49.
60 Butler, 1990.
61 Gott dæmi um gagnrýni á jákvæða hugsun og hvernig hún tengist ráðandi hugmyndafræði sam-
tímans má finna hjá Barböru Ehrenreich, sem í kjölfar þess að fá brjóstakrabbamein gagnrýndi
Hugur 2015-5.indd 134 5/10/2016 6:45:33 AM