Hugur - 01.01.2015, Page 142

Hugur - 01.01.2015, Page 142
Hugur | 27. ár, 2015 | s. 142–150 Róbert Jack Frammi fyrir lífinu og dauðanum Um Hugsunin stjórnar heiminum eftir Pál Skúlason Varla er mögulegt að fjalla um skrif Páls Skúlasonar svo skömmu eftir andlát hans án þess að minnast mikilla áhrifa hans á íslenska heimspeki. Hann tók þátt í að mennta nokkrar kynslóðir af heimspekingum, skrifaði mikið um heimspeki og lagði líklega meira til almennrar heimspekiumræðu á Íslandi en nokkur annar fyrr og síðar. Það er því óumdeilt að Páls verður minnst þegar saga íslenskrar heimspeki verður skrifuð. Það rit sem ég hef tekið að mér að fjalla um hér, Hugsunin stjórnar heiminum, er eitt af nokkrum ritum sem Páli lánaðist að koma frá sér skömmu fyrir and- látið. Titill greinasafnsins er sóttur í viðtal frá 1985 sem, eins og segir í inngangi Marteins Sindra Jónssonar, endurspeglar ákveðna hugmynd í textunum. Þetta viðhorf kemur heldur ekki á óvart miðað við fyrri skrif Páls.1 Þó verður ekki séð að hann taki hugmyndina til frumspekilegrar meðhöndlunar í þessari bók. Sjálfum finnst mér titillinn skemmtilega sjálfshjálparlegur og hefði mátt bú- ast við að Páll tæki þá hlið á stjórn hugsunarinnar til sérstakrar umræðu í bók- inni. Það gerir hann líka að vissu leyti. Til að mynda nefnir hann í formála að „frumframkvæmd“ okkar eigi að vera að gera okkur heiminn í hugarlund, þ.e. áður en við hefjum aðrar athafnir (7–8). Einnig er slegið á svipaða strengi í „Hvers vegna heimspeki?“ (20) og „Hlutverk heimspekingsins í opinberu lífi“ (63). Elsti textinn í greinasafninu er frá árinu 1976 og sá yngsti er frá útgáfuári bók- arinnar, 2014. Þrátt fyrir að greinarnar séu frá þetta löngu tímabili, get ég ekki séð annað en samhengið í textunum sé að minnsta kosti ekki verra en gengur 1 Í greininni „Hver er hinn sanni heimur?“ talar Páll um hugarheiminn sem upprunaheim sem komi í vissum skilningi á undan náttúruheiminum og mannheiminum (1995: 54). Reyndar er vísbending um það í síðustu greininni í Hugsunin stjórnar heiminum að heimur merkingar, sem er mannheimurinn í aðeins breyttri mynd, liggi hinum heimunum til grundvallar. Fjallað verður um þriggja heima kenningu Páls hér á eftir en þó ekki þetta síðastnefnda atriði. Hugur 2015-5.indd 142 5/10/2016 6:45:36 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.