Hugur - 01.01.2015, Page 153

Hugur - 01.01.2015, Page 153
 Pælt í háskólum 153 fræðilegt starfsmenntasetur. Segja má að það hafi alla tíð verið unnið að því að sætta þessar tvær leiðandi hugmyndir og láta þær styðja hvor aðra (bls. 99–100). Það er síðan skoðun Páls, sem hann nálg- ast úr ólíkum áttum í þessari bók, að ekki sé unnt að sætta þessar leiðir og láta þær styðja hvor aðra nema skilja vel hver munurinn er, hvaða gildi liggja hvorri hugmynd um sig til grundvallar, og hvers vegna báðar séu mikilvægar. Háskólar í ólgusjó samtímans Páll rekur hugmyndir ýmissa manna um ógnir sem steðja að háskólum, t.d. hug- myndir Patriciu J. Gumport um að stofn- anarökvísi (e. institutional logic) banda- rískra rannsóknarháskóla hafi breyst frá því að vera rökvísi félagslegra stofnana yfir í rökvísi sem hæfir iðnfyrirtækjum, með þeim afleiðingum að hefðbundnir háskólar líða undir lok (bls. 48). Páll nefnir einnig hugmyndir Bills Reading, sem segir að háskólar síðustu þrjár aldirn- ar hafi byggt á hugsjón upplýsingarinnar um að f ræðin stuðli að því að bæta menntun og menningu innan ramma þjóðríkisins, en með hnignun þjóðríkisins og þjóðmenningar hafi sá grundvöllur brostið. Við hafi tekið hrein yfirborðs- mennska undir því yfirskyni að starfsem- in sé framúrskarandi – allt miðast við „excellence“ – og að mælikvarðarnir á frammistöðu séu í raun innantómir og miðist við magn en hvorki innihald né raunveruleg gæði (bls. 50–52). Af talsvert öðru tagi eru hugmyndir Clarks Kerr um fjöl-háskólann (e. multiversity). Þessar hugmyndir eru ekki endilega svartsýnar á stöðu eða horfur háskólanna þótt þær hugnist Páli ekki. Páll ber hugmyndir Kerrs um fjöl-háskólann saman við hug- myndir Sartres um mannveruna, en hann taldi að mannveran hefði ekkert eðli. „Að vera til fyrir manneskjuna felst í því, að mati Sartres, að taka ákvarðanir um hvað hún gerir úr sér“ (bls. 113). Fjöl-háskólinn hefur ekkert eðli, „hann er bara það sem þeir sem þar starfa gera úr honum“ (bls. 113). Páll er ekki sannfærður, hvorki af hrakspám Gumport og Readings né greiningu Kerrs. Hann setur fram eig- in hugmynd um háskóla sem andsvar við efasemdaröddum um eðli þeirra og tilverugrundvöll. Hann orðar þessa hug- mynd með eftirfarandi hætti í kaflanum „Kreppa háskóla og kjarni háskólastarfs“: Í mínum huga leikur ekki vafi á að til er ákveðin hugmynd um háskóla sem mótast hefur í aldanna rás og birtist í almennri og hugsjónabund- inni sjálfsmynd háskólasamfélagsins hvar sem er í heiminum. ... Hug- mynd þessi er af sama toga og hug- mynd Aristótelesar um manninn sem skynsemisveru og hugmynd Je- an-Paul Sartre um manninn sem frjálsa veru: Verkefnið er þá að skapa skilyrði og tæki til að gera drauminn um mannlíf undir merkjum skyn- semi og frelsis að veruleika (bls. 116). Til að skilja starfsemi háskóla – og skilja að þeir geti lifað af í samtímanum – þarf, að mati Páls, að skoða þá undir þremur ólíkum sjónarhornum sem fyrirtæki, stofnun og samfélag. Sérhver háskóli er þetta allt í senn. Eftir að hafa útlistað þessi þrjú sjónarhorn segir Páll svo: [Samfélagssjónarhornið] vegur að mínu mati þyngst þegar leitast er við að skilja starfsemi háskóla og þá sið- fræði sem henni tengist. Erfiðleik- arnir sem háskólar eiga við að etja um þessar mundir tel ég raunar stafa af því að samfélagseðli þeirra er van- rækt (bls. 120). Rektorinn Háskólapælingar hefur að geyma bæði fræðilegar greinar og styttri erindi og ræður. Ég hef einkum fjallað um hinar fræðilegu greinar en erindin og ræðurnar eru einnig athyglisverð, m.a. þar sem Hugur 2015-5.indd 153 5/10/2016 6:45:40 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.