Hugur - 01.01.2016, Page 44

Hugur - 01.01.2016, Page 44
44 Jón Ásgeir Kalmansson upptöku almennra, réttlætanlegra hegðunarreglna. Til er annað fólk sem hefur þá grunnsannfæringu að við lifum í heimi hvers leyndardómur er hafinn yfir okkur og að siðferði sé könnun þessa leyndardóms að svo miklu leyti sem hann varðar hvert og eitt okkar.57 Murdoch vekur hér máls á tveimur ólíkum hugmyndum um hvað siðferðileg hugsun felur í sér og þá um leið hvaða skilning við höfum á siðfræði. Við get- um í mjög stuttu máli sagt að hér sé annars vegar um að ræða þá hugmynd að siðferðileg hugsun gangi út á að yfirvega almenn siðalögmál og beita þeim við vissar aðstæður í þeim tilgangi að fella vel ígrundaða siðferðilega dóma. Þetta er í grófum dráttum sá skilningur á siðferðilegri hugsun sem finna má í mörgum inngangsritum um siðfræði og einkennir að verulegu leyti hefðbundnar siðfræði- kenningar, svo sem nytjastefnu, kantíska siðfræði og siðfræðikenningar í anda sáttmálakenninga.58 Eins og Murdoch gefur til kynna er í slíkum kenningum einkum lögð áhersla á ratio, það er að sýna fram á með almennum, skynsamlegum rökum að tiltekið siðalögmál sé hinn endanlegi mælikvarði á siðferðilegt gildi og hvernig megi beita því til dæmis til að leggja mat á einstakar aðstæður eða almennar hegðunarreglur. Eins og einnig má ráða af tilvitnuninni, fylgir þessari hugmynd sú afstaða að „við lifum öll í sama reynslu- og röklega skiljanlega heim- inum“, það er að þótt fólk geti eftir atvikum greint á um staðreyndir þá sé grund- vallarskilningur þess á því í hvernig heimi það lifir í aðalatriðum hinn sami. Hins vegar er svo sú hugmynd að siðferðilegur skilningur sé ekki eingöngu tengdur því hvaða siðalögmál eru lögð til grundvallar dómum og breytni, heldur varði hann ekki síður það hvernig veruleikinn í heild kemur okkur fyrir sjónir á ólíka vegu og hvernig við skiljum sjálf okkur sem hluta af þeim veruleika. Þar með talið er hvort manni virðist veruleikinn vera eitthvað hart sem ekki eigi samleið með skynsemi og gildum eða maður sjái hann sem leyndardóm sem geisli allur og glói af gæðum. Murdoch orðar þessa síðari hugmynd um eðli siðferðilegs skilnings meðal annars með eftirfarandi hætti: Siðferðilegt hugtak virðist með öðrum orðum síður vera eins og hreyf- anlegur og sveigjanlegur hringur sem lagður er niður til að ná yfir visst svæði staðreynda, en fremur vera eins og allt annað Gestalt. Okkur grein- ir ekki aðeins á vegna þess að við veljum ólíka hluti í sama heiminum heldur vegna þess að við sjáum ólíka heima … [Til eru þeir sem myndu] halda því fram að siðferði sé skilningur, túlkun og íhugun, engu síður en ‚val‘.59 Þegar Murdoch talar hér um siðferðilegt hugtak á hún við siðferðilegan skilning, skilning á góðu og illu, réttu og röngu, og svo framvegis. Hún segir að slíkur skilningur sé eins og Gestalt, sem ef til vill mætti þýða sem heildarsýn eða heims- 57 Murdoch 1999: 88. 58 Jón Á. Kalmansson 2015. 59 Murdoch 1999: 82. Hugur 2017-6.indd 44 8/8/2017 5:53:21 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.