Hugur - 01.01.2016, Blaðsíða 140
140 Eyja M. Brynjarsdóttir
lögmæti hennar, eða hvort frumspekilegar staðhæfingar eða frumspekikenningar
geti haft einhverja merkingu. Höfnun rökfræðilegra raunhyggjumanna á merk-
ingarbærni frumspekilegra staðhæfinga og hin svokallaða málfræðilega beygja (e.
linguistic turn), sem átti sér stað sem eins konar þróun í kjölfarið á hugmyndum
þeirra nokkru síðar, eru báðar dæmi um frumspekiandúð í rökgreiningarheim-
speki. Hreyfingar sem hafa hafnað frumspeki hafa þó vissulega líka sprottið upp
í meginlandsheimspeki. Söguna má svo auðvitað rekja aftur til raunhyggjumanna
á nýöld.
Þrátt fyrir þetta hefur frumspeki verið stunduð innan rökgreiningarheimspeki-
hefðarinnar áratugum saman. Hefðin hefur þá verið að einblína á hluti sem lítið
hafa virst tengjast raunverulegu lífi fólks eða hafa samfélagslegt gildi, eins og það
hvort hlutir séu safn eiginleika sinna eða eitthvað annað og meira, eða hver sé
grundvöllur orsakarhugtaksins. En frumspekin hefur líka verið notuð í þágu sam-
félagsgagnrýni. Til dæmis hefur verið rýnt í verufræði kyns, kynþátta og annarra
félagslegra flokka, auk þess sem forsendur hinna ýmsu félagslegu fyrirbæra hafa
verið skoðaðar.55 Nýlega hefur komið fram gagnrýni á það að litið sé á óhlut-
bundnar einingar í veruleikanum sem það sem liggi öllu öðru til grundvallar og
jafnframt að slíkar grundvallareiningar eigi að vera mikilvægari og merkilegri í
frumspekilegum skilningi en það sem er augljóslega samsett af öðru, eins og kyn
eða kynþáttur.56
Enn má nefna hræringar í vísindaheimspeki. Saga hennar er um margt áhuga-
verð og flókin í þessum efnum og mikið verk væri að gera henni skil svo vel
færi á. Eins og geta má sér til um af því sem fram hefur komið hér að framan
um pósitívistana á vísindaheimspeki tuttugustu aldar sér þó nokkrar pólitískar
rætur, þ.e.a.s. margir af hennar helstu hvatamönnum voru knúnir áfram af hug-
myndum um samfélagsumbætur þar sem vísindin gegndu stóru hlutverki. Margt
bendir þannig til að þó nokkuð hafi verið um samfélagsgagnrýni og annað slíkt í
vísindaheimspeki rökgreiningarheimspekinga fyrstu áratugina. Í greininni „Two
Left Turns Make a Right: On the Curious Political Career of North Americ-
an Philosophy of Science at Midcentury“57 gerir Don Howard úttekt á þeim
breytingum sem hann segir hafa orðið á vísindaheimspeki í Bandaríkjunum um
miðja tuttugustu öld. Meðal annars segir hann fjölda greina í vísindaheimspeki-
tímaritum þar sem vísindaheimspeki er tengd við siðferðisgildi hafa hrunið mjög
skyndilega upp úr miðjum sjötta áratugnum.
Hvað nýlega þróun í vísindaheimspeki varðar má til dæmis benda á femíníska
vísindaheimspeki sem hefur þróast með blómlegum hætti undanfarna áratugi,
bæði í tengslum við þekkingarfræði og sem gagnrýni á ýmsar hliðar vísindasam-
félagsins, framkvæmd vísinda og túlkun vísindalegra kenninga og niðurstaðna.58
Eins hefur verið mikil gróska í gagnrýninni umfjöllun um kynþáttahugtakið í
55 Haslanger 2012; Mills 1997; Appiah 1985; 1996.
56 Barnes 2014.
57 Howard 2003.
58 Sjá t.d. Keller 1985; Harding 1986; Longino 1990; Hubbard 1995; Lloyd 2005.
Hugur 2017-6.indd 140 8/8/2017 5:53:50 PM