Hugur - 01.01.2016, Side 110

Hugur - 01.01.2016, Side 110
110 Sigrún Inga Hrólfsdóttir isma, póststrúktúralisma, órofahyggju9 og póstmódernisma, svo aðeins fátt eitt sé nefnt sem telja má til áhrifavalda hlutmiðaðra verufræðinga. En auk hinna fjölbreyttu heimspekistefna má nefna myndlist, tónlist, tölvur og netvæðingu og margt fleira úr samtíma okkar. Og síðast en ekki síst skyldi hér telja stærðfræði, eðlisfræði og önnur náttúruvísindi. Sú hugsun sem felst í hlutmiðaðri verufræði hefur sterka tengingu við speki Martins Heidegger, sem var nemandi Edmunds Husserl og fyrirbærafræðingur í grunninn, en báðir voru þýskir heimspekingar, þó að nálganir Heideggers og Husserls séu ólíkar. Hjá Heidegger er einnig að finna mikil áhrif frá Aristótelesi. Hann kynnti frumspekina aftur til sögunnar innan meginlandsheimspekinnar eftir nokkurt hlé. Eftirfarandi brot er úr frægri grein Heideggers frá árinu 1929, „Hvað er frumspeki?“ (þ. Was ist Metaphysik?), sem er viðbragð við hinni vægðar- lausu gagnrýni rökgreiningarheimspekinga þess tíma á frumspeki. En Heidegger fullyrðir að vísindin séu byggð á frumspekilegum forsendum, sem séu þeim sjálf- um hulin.10 Frumspekin tilheyrir „náttúru mannsins“. Hún er hvorki grein innan skólaheimspekinnar né vettvangur tilviljanakenndra hugdetta. Frum- spekin er grundvallaratburður í tilverunni. Hún er sjálf tilveran. Vegna þess að sannleikur frumspekinnar býr í þessum botnlausa grunni, er næsti nágranni hennar hin veglausa villa, sem sætir stöðugt færis. Af þessum sökum kemst engin vísindaleg ögun í hálfkvisti við alvöru frumspek- innar. Heimspekina er aldrei hægt að mæla með mælistiku hugmyndar vísindanna.11 Margvísleg kerfi og greiningar hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda. Það er nátt- úra manneskjunnar að flokka og skilgreina. En þetta hefur engu að síður ávallt va- fist fyrir fólki, því það dúkka endalaust upp fyrirbæri sem ekki falla í neinn flokk. Auk þess er það eðli margra fyrirbæra að um leið og þau hafa verið skilgreind, þá endurskilgreina þau sig umsvifalaust. Þó svo að ætla megi að góður ásetningur fylgi flestum skilgreiningum og því hvaða hlutverk hver hlutur og athöfn hafi, þá hefur þessi skilgreiningagleði manneskjunnar haft það í för með sér að hlutum og hugmyndum er skipað í stigveldi. Eitt er talið merkilegra en annað. Skilgreiningar manna geta enn fremur virkað sem spennitreyja og fjötrar á raunveruleikann og byrgt okkur sýn á fjölbreytileika lífsins. Við sjáum ekki hlutina einsog þeir eru, heldur einsog hvernig við erum. Og um sumt er jafnvel sagt að það sé yfirhöfuð ekki til. Í byrjun 20. aldar opnuðu vísindin hina miklu Pandóruöskju, skammtafræðina, og gátu virkjað hana og notað í útreikningum, en náðu samt ekki beinlínis utan um hana heimspekilega. Því skammtafræði vekur upp spurningar um grunneðli veruleikans og þar hefur orsakalögmálið nokkuð aðra merkingu en venjulega 9 Órofahyggja er tilraun til þess að þýða enska orðið organicism. 10 Sigríður Þorgeirsdóttir, „Continental Philosophy eftir Simon Critchley: ritdómur“. 11 Heidegger 2011: 119. Hugur 2017-6.indd 110 8/8/2017 5:53:41 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.