Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 112
ákváðu að taka börn, þegar þau sáu aðkomubörnin hjá nágrönnun-
um, og endirinn varð sá, að færri fengu en vildu.
Dvalartíminn varð 2 mánuðir. Dvalarkostnaður varð að meðal-
tali kr. 1,80 á dag, þegar allt var reiknað með, ferðakostnaður,
umsjón á dvalarheimilinu, kostnaður við fatnað o. f 1., auk fæðis.
Börnin voru um 600, fyrir utan þau, sem R. K. I. hafði útvegað
sumardvöl, áður en hin félögin komu til sögunnar.
b) Finnskar baðstofur.
Unnið var allt árið að tilraunum um gerð rafhitalagna, er komið'
gætu í stað finnsks baðofns við gufubað. Raftækjaverksmiðjan
Ljósafoss hafði þessar tilraunir með höndum, en formaður R. K. I.
fylgdist með tilraununum og reyndi sjálfur öll þau tæki, sem ætluð
eru til heimilisnotkunar. í árslok var fundin gerð, er virtist full-
nægja ýtrustu kröfum um hita og gufu, og tekur hún kolaofnunum
langt fram um hreinlæti og þægindi. Eftir sex mánaða vikulega
reynslu og smávægilegar umbætur, er nú raftækjaverksmiðjan
byrjuð að smíða þessi tæki. Hefir einni rafhitaðri baðstofu verið
komið fyrir á Akranesi og annarri í Reykjavík, en margar eru í
pöntun. Af stærri gerð hefir verið komið fyrir einni við sundlaug
Akureyrar og annarri í lækningastofum Karls Jónssonar læknis í
Reykjavík. Þessar rafhituðu baðstofur eiga vafalaust mikla fram-
tíð fyrir sér.
c) Heilsuverndarstarfsemin í Sandgerði.
Almenningsböðin voru prýðilega sótt. Steypiböð tóku 317, en
finnsk böð 229. Eins og getið var um í siðustu skýrslu, dró vatns-
leysi mikið úr böðunum, þegar leið á vertíðina. Úr þessu hefir nú
verið bætt með vatnsleiðslu úr brunni. Ahugi fyrir böðunum fór
sívaxandi á yfirstandandi vertíð.
I sjúkraskýli R. K. I. í Sandgerði framkvæmdi berklayfirlæknir
Sig. Sigurðsson skoðun á þeim íbúum Miðnes- og Gerðahrepps, sem
til náðist.
3. Líknarstarfsemi.
a) Hjúkrunarstarfsemin í Sandgerði.
10 sjúklingar dvöldu á sjúkraskýlinu, 6 karlar, 3 konur og 1 barn.
Legudagar voru 69 alls. Hjúkrunarkonan gerði 1144 hjúkrunar-
aðgerðit' og fór í 94 hjúkrunarvitjanir í sjóbúðir og hús í nágrenn-
inu. Auk þess voru 14 sjúklingar meðhöndlaðir á sjúkrasýklinu
vegna kláða (Scabies). Sjúkraskýlið starfrækt 16./1.—12./5. ’40.
216
Heilbrigt lif