Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 109
1. júní, er Garðsstjórn í samráði við heilbrigðisstjórnina leigði
brezka setuliðinu Garðinn fyrir spítala. I millitíð hafði landlæknir
athugað, að svo mikið mætti rýma til á þeim spítölum, sem fyrir
eru, að ekki væri brýn nauðsyn að halda Garðinum. — Nýskeð
hefir þó, fyrir forgöngu R. K. í. og landlæknis, Laugarnesskóla ver-
ið bætt við sem ígripa-spítala. Rúmar hann 40 fullorðna og um
20 börn. Auk þess hefir R. K. í. ráð yfir miklu húsnæði í öðrurn
skólum bæjarins.
b) Forðabúr hjúkrunargagna.
Þótt koma mætti fyrir um 100 aukarúmum í spítölunum, varð sú
raunin á, að enginn spítali átti rúmstæði né rúmföt aflögum. Var
því hafizt handa að láta gera hvort tveggja. Landlæknir ánafnaði
R. K. í. 50 rúmstæðum af gerð, er stjórn R. K. í. hafði hugsað sér,
en landlæknir féllst á og samdi um að láta gera. Loftvarnanefnd
ákvað að láta gera 50 rúmstæði í viðbót og að fá rúmfatnað í þau
öll. R. K. í. lagði þó til helminginn af teppunum, en þau voru alls
3 ætluð í hvert rúm. Rúmfatnaði hvers rúms ásamt sápu, hand-
klæðum o. fl. var svo komið fyrir í læstum kassa, sem nota má sem
náttborð við rúmið, þegar rúmfötin eru ekki í honum. En hver
2 rúm eru lögð saman og fest saman með spennum, og eru þannig
rnjög létt og þægileg í flutningum.
Stjórn R. K. I. fékk ágæta geymslu fyrir þetta forðabúr i kjall-
ara nýju háskólabyggingarinnar, fyrir sérstaka velvild háskóla-
rektors, próf. Alexanders Jóhannessonar, og prófessors Jóns
Steffensen, en honum var húsnæðið ætlað.
Fyrir mánuði hefir loftvarnanefnd ákveðið að bæta 100 rúm-
stæðum ásamt teppum og nauðsynlegustu líni við þennan útbún-
að, auk þess 200 dýnum og 160 sjúkrabörum. Er þá fyrir því séð,
að 5—600 manns geti haft sómasamlega viðlegu, þar af um 200 í
allgóðum sjúkrarúmum. Telst það allgott í dag, hver sem raunin
verður.
c—d) Hjálparstöðvar og hjálparsveitir.
Með bréfi landlæknis 22. maí 1940 var R. K. í. falið að „undir-
búa fyrstu hjálp særðum mönnum, ef til loftárása kæmi á Rvík, og
tilkynna fólki hjálparstöðvar". Þetta var mjög vandasamt verk, og
tók læknana í stjórn R. K. í. mikinn tíma. En árangurinn varð 15
hjálparstöðvar alls, þar af 6 stórar, ein á hverjum spitala, Landsp.,
Heilbrigt líf
213