Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 110
Landak., Hvítab. og ein í hverjum bæjarhluta, Austurbæjarsk., Elli-
heimilinu og Líkn (síðar í slökkvistöð). Líka ein svokölluð „eldlínu-
stöð“, viðbúin að fara á vígstöðvar til bjargar særðum, og koma
þeim á spítala eða hjálparstöð. Allar stöðvarnar hafa sjúkrabörur,
umbúðakassa o. fl. til fyrstu hjálpar. Auk þessa var læknum skipað
um bæinn í 8 staði, sumpart í fjölmennustu hverfin, sumpart þar
sem flestir læknar taka daglega á móti sjúkum, svo að enginn leit-
aði þar að án úrlausnar. — 57 læknum var dreift á þessar 15
stöðvar og bráðlega bættust hjúkrunarkonur, læknanemar og skáta-
stúlkur við á þessar stöðvar, og síðar skátar, svo konur í hjálpar-
sveitir heimilanna, og síðast bílstjórar hjálparsveitanna. Nú telja
sveitirnar: 64 lækna, 25 læknaefni, 11 hjúkrunarkonur, 112 skáta,
30 skátastúlkui', í hjálparsveitum heimilanna ca. 80 konur, 33 bíl-
stjóra hjálparsveitanna, alls ca. 345. Síðustu mánuðina hefir loft-
varnanefnd ráðið ungan lækni, Bjarna Jónsson, til þess að aðstoða
R. K. I. við að æfa þessar sveitir, einkum skátasveitirnar, og hjálpa
form. við ýmsan undirbúning. Hefir hann reynzt ötull í starfi.
e) Bréfaskipti viS lönd í ófriði.
Með hernámi Danmerkur og Noregs tók algerlega fyrir póstsam-
göngur við öll Norðurlönd, og enn þreng'dist um, er Holland, Belgía
og Frakkland fóru sömu leið. Þess vegna var því fagnað hér, þegar
Alþjóða Rauði Krossinn í Genf beitti sér fyrir bréfskeytasending-
um milli hernaðarþjóðanna. R. K. í. fékk fyrst vitneskju um þetta
frá enska R. K. með símskeyti, dags. 9. maí, og skrifaði samdæg'urs
eftir nánari upplýsingum og fyrirmælum. Strax og þær komu, hófst
hann handa um bi'éfskeytasendingar. Fylgdi þeim skriffinnska
mikil og ritskoðun, og vann fjöldi sjálfboðaliða hjá R. K. í. fyrsta
Vi mánuðinn, meðan ösin var mest, og kann R. K. í. — þótt hann
nefni ekki nöfn ■—- þeim öllum beztu þakkir. Mikil vonbrigði urðu,
að svöi'in bárust ekki fyrr en eftir 2—6 mánuði — einkum eftir
hernám Frakklands. Dró þá smám saman úr skeytasendingunum.
Skeytin skiptust þannig niður:
Danniörk: Send frumsk. 819 Fengin svör 126 Móttekin frunisk. 634 Send svör 347
Noregur: » » ?57 » » 151 » » 47 » »
Þýzkaland 122 » » 3 » 27 » »
Hollnnd: » » 26 » » 1 » » 12 » »
Belgia og Frakkl, ,: » » 17 » » 0 » 0 » »
Send frumskeyti alls 12-11 Móttekin frumskeyti alls 720
* svarskeyti » 347 » svör 281
Alls send 15S8 Alls fengin 1001
Þetta er miðað við 20. febrúar 1941. Síðan hafa kortiið nokkur
skeyti, og þau virðast nú ganga betur en fyrr.
214
Heilbrigt líf