Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 35
og á ýmsum vinnustöðum, þar sem hóstandi berklaveikur
sjúklingur dvelur langvistum með heilbrigðu fólki, jafn-
vel börnum og unglingum, sem að jafnaði eru mjög næm-
ir fyrir smitun.
Það er því nauðsynlegt, að allir sjúklingar temji sér
sem bezt að bæla niður hósta sinn, og er þeir hósta, að
þeir snúi sér þá frá þeim, er hjá þeim eru, og haldi vasa-
klút fyrir nefi og munni. Oft verður að skipta um vasa-
klúta, svo að slímið og úðinn í þeim þorni ekki upp, því
að ella þyrlast sýklarnir upp í hvert skipti, sem klútur-
inn er notaður. Varast skal að halda hendinni fyrir nefi
og munni, þegar hóstað er eða hnerrað. Droparnir og úð-
inn setjast þá á hendina og geta borizt þaðan til annarra
með handtaki, á hurðarhúnum o. s. frv. Úr þeirri hættu
má að vísu draga verulega með því að þvo sér iðulega um
hendurnar.
Ryksmitunin verður á þann veg, að menn anda að sér
ryki, sem flytur með sér berklasýkla. Ef hráki eða
gröftur úr sárum berklaveikra þornar upp, blandast
hinir þurru sýklar ryki andrúmsloftsins. Ofurlítill vind-
súgur eða hreyfing í herberginu er nægileg til þess, að
rykið þyrlist upp í loftið og dreifist út yfir veggi og hús-
gögn. Með andardrættinum getur það svo borizt inn í
nef og munn og jafnvel alla leið djúpt niður í lungna-
pípur, og setzt þar að.
Ef hrist eru sængurföt, klæðnaður eða vasaklútar
berklaveikra sjúklinga, geta ógrynni af uppþornuðum
sýklum blandazt andrúmsloftinu. Ber því að varast slíkt.
Ennfremur má aldrei sópa gólf. Við rannsóknir hefir kom-
ið í ljós, að, ef gólf er sópað með þurrum sófli, eykst tala
hvers konar sýkla í andrúmsloftinu, svo að hún verður
8 sinnum meiri eftir sópunina en áður. Jafnvel, þó að
vott sag hafi verið á gólfinu, þrefaldast ryk and-
rúmsloftsins við sópunina. Aðeins ein leið er hér fær, og
Hcilbrigt líf ■—• 9
139