Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 5
Kalóríufjöldi pr. ár (270 millj. X 365) = 98,550,000,000
(íbúatala 1930 var 108,861). Ef miðað er við síðasta
manntal, verður
Kalóríufjöldi á dag fyrir 120 þús. íbúa 301,232,800
— - ári — — — — 109,950,000,000
eða sem næst 110 þús. milljónir (eða 110 millj. kíló-
kalóríur).
Orkumagn 5000 smálesta af hveiti á 4 kal. pr. gramm
verður 20,000 milljón kalóríur, eða tæpur i/5 af kalóríu-
þörf þjóðarinnar.
Um rúgbrauðið er miklu verra að dæma, vegna þess
hve mikið af því fer til skepnufóðurs. En, þar sem rúg-
brauðsneyzlan hér fer sífellt minnkandi á kostnað hveiti-
brauðsins, og virðist sækja í sama horfið eins og í flest-
um öðrum löndum, þar sem rúgbrauðið hefir að mestu
eða öllu leyti horfið af borðum almennings, ætla ég að
miða það, sem hér fer á eftir, aðallega við hveitibrauðið.
Mannéldisgildi brauðsins.
Það er rétt, að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði.
Ástæðufia til þess vissu menn ekki fyrr en á tuttug-
ustu öldinni. Brauðið er nefnilega það, sem nú er kallað
ófullkomin fæðutegund, þ. e. nægir ekki eitt út af fyrir
sig til að fullnægja viðhaldsjiörf líkamans. í brauðið
vantar sum eggjahvítuefni (aðallega lysin), sem nauðsyn-
leg eru til vaxtar. Og ennfremur vantar það ýmis fjör-
efni, sem líkaminn getur ekki án verið. En ef þessi efni
eru nægileg í öðrum fæðutegupdum, þá er brauðið ágæt
fæða, vegna þess hve það er góður orku- og hita-
gjafi og einhver allra ódýrasta matartegundin, sem kost-
ur er á. Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á nokkrum
helztu fæðutegundum eftir samsetningu þeirra og orku-
gildi:
Heilbrigt líf
109