Heilbrigt líf - 01.12.1941, Side 102

Heilbrigt líf - 01.12.1941, Side 102
„og fíkn í ónáttúrleg æsingalyf og óhollar nautnir og skemmtanir". Enda segir höf., að það megi heita „loku fyrir það skotið, að barátt- an gegn kaffi, tóbaki og' víni beri verulegan árangur, meðan það viðgengst, að hreinsaði sykurinn sé ein aðalfæðutegund vor“ (bls. 59). Þetta er þýðingarmikill lærdómur fyrir góðtemplara og aðra bindindisfrömuði, sem til þessa hafa eytt tíma og orku í það að elt- ast við áfengið, í stað þess að hefja sókn gegn höfuðóvininum, sykrinum, því að, „að ósi skal á stemma“. Já, það má með sanni segja, að líf þeirra, sem leggja sér sykur til munns, sé „háski og böl“ o. s. frv. Og það er ekki að ófyrirsynju, að höf. heimfærir á dauðhvíta sykurinn þessi orð: „Jafnskjótt og þú etur af því, skalt þú vissulega deyja“ (bls. 20). Og hvílíkur dauð- dagi, byrjar á harðlífi og endar á krabba! En hvað tekur svo við hinum megin? Þar mun kuldaleg heimkoman, því að hvíti sykurinn leiðir þig burtu frá sólríku jarðlífi og þangað, „sem sól vor er hætt að skína“ (niðurlagsorð bls. 71). Allt þetta um sjúkdóma og dauða af völdum sykursins er höf- undinum svo augljóst mál, að hann þarf ekki að grípa til heilbrigðis- skýrslna eða annarra tölulegra heimilda (statistik). Þó grípur hann til þess í sambandi við sykursýkina, til þess að taka af allan efa um orsakir hennar. Og taki menn nú eftir: í Bandaríkjunum er sykurneyzla meiri en i nokkru öðru landi, enda deyja þar árlega hvorki meira né minna en yfir 5 milljónir manna úr sykursýki (bls. 20). Jafnvel hvítvoðungarnir hrynja niður úr sykursýki, því að árið 1933, sem tekið er til dæmis, dóu um 20 af hverjum 1000 nýfæddra úr sykursýki! (Það svarar til meira en helmings alls ungbarna- dauðans hér á landi.) Mikill má manndauðinn allur vera þar í landi, því að þrátt fyrir þetta var (skv. upplýsingum höf., bls. 29) sykur- sýkin ekki nema 9. alg'engasta dánarorsökin (að vísu árið 1930, en hinar tölurnar virðast miðaðar við 1933). Höf. getur þess ekki, hve mikill heildarmanndauðinn hafi verið í Bandaríkjunum, en í al- þjóðaskýrslum um farsóttir o. fl. má sjá, að hann hefir síðustu árin verið um 11%0, eða nánar til tekið árið 1933 10,7%o. Nú er ibúatala Bandai'íkjanna tæpl. 130 milljónir. Alls hafa þar því dáið, árið 1933, tæpl. 1,4 milljónir manna og þar af yfir 5 milljónir úr sykursýkinni einni, sem þó var aðeins sú 9. í röðinni af dánarorsökunum! Það er rétt að geta þess, að hér er ekki prentvillu um að kenna í „Sann- leikanum". (I skýrslum Þjóðabandalagsins (Rapport epidemiologique annuel 1937) sést, að árin 1936 og 1937 hafa dáið að meðaltali 23.7 206 Heilbrigt líf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Heilbrigt líf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.