Norðurljósið - 01.01.1971, Page 190
190
NORÐURLJÓSIÐ
Glskar þú Drottin Jesiim?
Stórríkur maður missti konu sína frá kornungum einkasyni. Mað-
urinn fékk sér ráðskonu til að líta eftir drengnum. Þegar drengurinn
var orðinn fulltíða maður, andaðist hann. Faðir hans átti enga aðra
ættingja og lézt af harmi nokkru síðar. Enginn var til að erfa hin
geysimiklu auðæfi hans. Hvað mundi verða um eignir hans? Leitað
var að erfðaskrá, en hún fannst engin. Loksins tók ríkið eignir hans
til sín. Þá var haldið upphoð á eftirlátnum munum hins framliðna
manns.
Ráðskonan, sem alið hafði upp drenginn frá frumbernsku, sócti
uppboðið. Hún var enn eins fátæk og hún var, er hún gerðist ráðs-
kona ríka mannsins og tók að sér að halda heimili fyrir hann. Hún
gat ekki keypt húsgögnin né dýra gólfdúka. En á vegg í húsinu hékk
mynd af drengnum.
Hún elskaði þennan dreng. Hann hafði verið henni sem sonur,
þótt óskyld væru þau. Er selja skyldi myndina, kærði enginn sig um
hana, svo að hún keypti hana fyrir örfá sent og fór með hana heim.
Er myndin hafði hangið þar um tíma, datt konunni í hug að hreinsa
hana. Hún tók bakið frá, en þá duttu þar út einhver skjöl, mikilvæg
að sjá. Þau voru afhent lögfræðingi, sem mælti við konuna: „Ég
býst við, að þér hafið dottið og komið niður á fæturna í þetta skipti.
Þann, sem elskaði son 'hans nógu mikið til að kaupa myndina, hefir
maðurinn arfleitt að öllum auðæfum sínum.“
Guð vill gera hvað, sem er, fyrir þá, sem elska son hans, Drottin
Jesúm Krist. Elskar þú hann? — Edward Drew.
Þýtt úr Things Concerning Himself. Jan.—Febr. 1971. — Þetta
indæla rit geta öll Guðs böm, sem lesa ensku, fengið ókeypis. Látið
mig vita, ef þið óskið þess.
S. G. J.
,,/i'g veit það er óttalegt, en ég elska ekki Jesúm,“ sagði lítil telpa
við trúboða. Hann sagði henni að fara heim og segja allt af við
sjálfa sig á leiðinni: „Jesús elskar mig. Jesús elskar mig.u Hún fór,
og þau hittust aftur nokkrum vikuin síðar. Þá var telpan glöð og
sagði: „Nú elska ég Jesúm, því að Jesús elskar mig.“ Líf kveikir
líf, og elska kveikir elsku. Hann elskaði oss að fyrrabragði.