Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1930, Síða 38

Andvari - 01.01.1930, Síða 38
34 Péfur Jónsson á Gautlöndum. Andvari en hann bar kvíðboga fyrir því, að það gæti orðið ógæfa fyrir landbúnaðinn. — Á yngri árum sínum hafði Pétur unnið að bindindis- málum. Og alla ævi var honum vínnautn fjarri skapi. — En jafnfjarri skapi var honum hið svo kallaða vínbann. Hann var svo frjálslyndur maður, að hann gat ekki neitað sér um þá hugsjón, að þeim einstaklingum, sem vildu, eða þurftu að neyta víns, mætti vinnast þroski til þess að kunna sér jafnt drykkjarhóf sem magamál. Og hann treysti ekki löggjöfinni til að tryggja það, að ekki gæti brugðið út af hvoru tveggja þessu. En á meðan svo stæði, að í þessum sökum þyrfti til að koma hjálpandi hönd, átti hún að koma frá bróður- þeli og með frjálsmannlegum samtökum. Einnig hér átti við hin frjálsa samvinna. Samgöngumálum og menningarmálum á alþingi fylgdi Pétur ætíð með áhuga. Og í þeim málum, hvorum tveggja, kom glöggt fram óhlutdrægni hans og víðsýni. Mun ekki annar maður hafa unnið að vegalögum landsins af meira réttdæmi um hlutfallslega þörf og aðstöðu hvers landshluta og héraðs í þeim efnum. Hið sama gilti og, þegar hnotabit og örvadrífa stóð um það, hver elfurin skyldi brúuð í ár og hver yrði að bíða. Og svo mikinn áhuga sem hann hafði á menntun alþýðu, lét hann það aldrei villa sér sýn um gildi og þjóðarsóma hærri menningar. Því fylgdi hann hugsjón og framkvæmd háskólamáls. Vildi kappkosta, að þangað veldust ágætir fræðimenn, og ekki sjá í nauðsynleg fjár- framlög til þess. Af sömu völdum taldi hann sjaldnast eftir fjárstuðning til vísindaiðkana, skálda og listamanna. Þann tíma, sem Pétur Jónsson átti sæti á alþingi, verður eigi séð, að þar hafi nokkur bóndi átt svo fjöl-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.