Andvari - 01.01.1930, Page 109
Andvari
Fræræktar- og kornyrkjutilraunir á íslandi.
105
Hana má framkvæma með lítilli þreskivél, sem knúin er
með handafli, eða sjálfhreinsandi þreskivél, sem knúð er
með bifvél. — Gildir þetta, ef kornyrkja er í töluvert
stórum stýl. En ef smáar eru tilraunir, má vel hand-
þreskja, og er þá kornið barið úr með priki eða því-
líku áhaldi.
í>ar sem margir ræktuðu korn í einum hrepp eða
byggðarlagi, væri bezt, að bændur ættu stórt þreskiverk
sjálfhreinsandi, sem knúið væri með bifvél; færi það bezt
úr hendi og yrði ódýrust þresking á þann hátt.
Um geymslu kornsins er það að segja, að bezt er að
geyma það í hrúgum yfir veturinn og hreyfa það til með
ummokstri við og við; heldst þá gróþróttur kornsins
betur, og það verður gott til útsæðis.
Hér hefir þá lýst verið í stórum dráttum, hvernig
bezt er að haga kornyrkju, svo langt sem þekking okkar
tekur. Er það von mín, að menn reyni fyrst með þessar
ágætu ræktarplöntur I smáum stýl og auki síðan — því
að mjór er mikils vísir.
Klemens Kr. Kristjánsson.