Jörð - 01.06.1948, Blaðsíða 10
Hann segir einnig:
„E£ menn hefðu verið frjálsir að því í Rússlandi að gera
opinberlega grein fyrir skoðunum sínum — ef þar hefði ekki
ríkt ritskoðun, þá hefði aldrei verið stofnað til þessa málarekst-
urs og þær aftökur aldrei farið fram, sem honum fylgdu.“
Hann kveðst vera alveg nýbúinn að fá bók, er í sé prentað
allt það, sem sagt hafi verið eða fesið upp við seinustu réttar-
höldin í Moskvu og hraðritað jafnóðum. Bókin sé 600 þétt-
letraðar blaðsíður — og sér hafi ekki gefizt tími til að lesa hana.
Aftur á móti liafi hann lesið sams konar rit um réttarhöldin,
sem fram hafi farið í ágústmánuði 1936.
Hann segir svo nteðal annars, að í því riti standi um þá
Kamenev og Sinojev, að þeir hafi verið menn, „sem hafi ger-
samlega skort allt hugtakafrœðilegt vegarnesti." (Leturbreyting
mín. — G. G. H.)
Kamenev hafði á yngri árum sínum lifað í útlegð, en síðan
tekið þátt í byltingunni og gegnt fjölmörgum mikilvægum
embættum í hinu nýja þjóðfélagi — og Sinojev var gamall bar-
áttumaður og útlagi og seinna formaður Aljyjóðasambands
Kommúnista, miðstjórnarmaður Kommúnistaflokksins og ár-
um saman gegnandi ýmsum öðruni trúnaðarstörfum og emb-
ættum hjá Ráðstjórninni, enda farast Överland þannig orð út
af ummælunum um Kamenev og Sinojev:
„Ef menn geta verið pekktir fyrir að láta frá sér fara svona
endemisvitleysu i opinberu plaggi, sem á að verða söguleg
heimild, pá geta peir látið sér sóma livað sem er.“ (Leturbreyt-
ing mín. — G. G. H.)
Hann segir ennfremur:
„Á bls. 9 stendur:
„Hinir trotzkísku og sinojevsku samsærismenn eru þegar
liættir að rökstyðja baráttu sína gegn flokknum og Ráðstjórn-
inni með ákæru um ranga stjórnarstefnu af hálfu flokksins og
Ráðstjórnarinnar, eru hættir að halda því fram, að flokkurinn
og Ráðstjórnin muni leiða jrjóðina í glötun, eins og þessir
lygalaupar og rógberar hafa hingað til staðið á fastar en fótun-
um. Aðalsönnun pess, að ógnarstjórn ríki i landinu, er nú að