Jörð - 01.06.1948, Blaðsíða 36
226
JÖRÐ
Rubashov lætur undan. Hann hefur verið beittur algeru
miskunnarleysi. Hann hefur ekki fengið svefnfrið, taugar hans
verið spenntar til hins ýtrasta við einkayfirheyrslur Gletkins
með því að láta sífellt skína framan í hann ofursterkt Ijós. Og
frummaðurinn segir við hraðritara sinn, sem óskar honum til
hamingju með sigurinn — og um leið lítur frummaðurinn til
lampans:
„Það er þessum að þakka ásamt svefnleysi og líkamlegri
þreytu. Þetta er allt-undir líkamsþoli komið.“
Hvernig átti Gletkin, sem upp hafði verið alinn án hins
„gamla, órökræna siðferðis”, að geta haft nokkra minnstu hug-
mynd um þá hjálparanda, sem liann hafði átt, þar sem voru
hinar ýmsu hugsanir og tilfinningar, er háðu sína styrjöld í
hugarborg Rubashovs. Rubashov hafði þolað hvers konar pynd-
ingar þýzkra nazista, og hin glæstustu tilboð höfðu ekki freistað
hans. En nú. . . . „Seinna myndi Ormurinn langi unninn hafa
orðið. . . . “ — og seinna mundi frummaðurinn, sem ekki átti til
að bera hið órökræna siðferði, hafa borið sigurorð af hinum
gamla hugsjónamanni, sem búizt hafði ungur til baráttu, brynj-
aður einmitt þessu siðferði, ef hann hefði ekki verið sjálfum sér
sundurþykkur, — ef hann hefði aldrei gert sér far um að
„brenna“ hið órökræna siðferði úr vitund sinni með „sýru
skynseminnar".
Hinum opinberu réttarhöldum yfir Rubashov kynnumst
við á mjög sérkennilegan og áhrifamikinn hátt:
Dyravörðurinn í húsinu, sem Rubashcfv hefdr búið í, er gam-
all maður, sem heitir Wassilij. Hann lvefur barizt undir
merkjum Rubashov á árum byltingar og hvítliðastyrjalda,
og hann getur aldrei annað en dáð og elskað hinn gamla frá-
bæra foringja sinn. Wassilij á dóttur, sem hefur tileinkað sér
boðorð og siðfræði Flokksins af mikilli kostgæfni. Hún hefur
„af uppeldislegum ástæðum" fleygt Biblíu föður síns, en gamli
maðurinn hafði falið hina helgu bók í dýnunni í rúminu sínu.
Dóttirin hafði „tekið upp þann sið að lesa dagblaðið upphátt
á hverju kvöldi“ — líka „af-uppeldislegum ástæðum". Nú les
hún upphátt fyrir hann um réttarhöldin yfir Rubashov. Gamli