Jörð - 01.06.1948, Blaðsíða 112
302
JÖRÐ
og slits. Kennslustofur eru 9 og þá allt húsið notað til kennslu,
og tvær stofur, meðtaldar, sem reistar voru í bakgarði liússins
1944. Áhaldageymsla er engin, fatageymsla lítil önnur en gang-
arnir, snyrtiaðbúnaður allskostar ófullnægjandi og verustaður
milli stunda enginn. I skólanum eru í vetur um 900 nemend-
ur og 30 kennarar. Kennarastofa ein, sem jafnframt er skrif-
stofa og geymslustaður fyrir áhöld.
Þeir einir, sem telja að í Reykjavík þurfi ekki að vera fleiri
en 200 iðnnemar, geta í alvöru haldið því frarn, að hægt sé að
komast af með þetta húsnæði lengur. Við hina er ekki hægt að
ræða málið. Og að halda því fram, að borg með 50000 íbúa, í
örri tæknilegri þróun, geti látið sér nægja að ala upp að jafn-
aði 50 nýja iðnaðarmenn á ári, í 53 iðngreinum, er lieldur
ekki hægt að taka alvarlega.
Þörfin fyrir nýtt skólahús er orðin svo knýjandi, að það er
ennþá algerlega óleyst mál, hvernig hægt verður að komast af
næsta vetur. Allar líkur benda til þess, að neita verði nokkrum
hluta 3. bekkinga um aðgang að skólanum, og segja þeinr, sem
ekki telja þörf á að flýta byggingunni, að taka við þeim. En það
er mál, sem verður rætt á öðrum vettvangi.
I hinu nýja skólahúsi, senr byrjað er á, verða 20 kennslustof-
ur, auk nokkurra verkstæðisstofa í kjallara og teiknisals og
heimavistar á efstu hæð. Auk venjtdegra iðnnema verður þarna
forskóli — það er, verkleg undirbúningsnámsskeið, til þess að
kanna lræfni unglinga til iðnnáms. Ennfremur framhaldsskóli
fyrir sveina og meistara, og námsskeið og sérskólar í ýnrsunr
greinum. Hefur á síðari árum verið nokkur eftirspurn eftir
slíkum nánrsskeiðum, en húsnæðisleysi hefur staðið því fyrir
þrifum, að hægt yrði að verða við þeinr óskum.
íslendingar eiga þegar vel hæfa og samkeppnisfæra iðnaðar-
stétt. En það er ekki nóg. Kyrrstaða þýðir afturför. Hin öra
þróun hér heimtar framfarir á öllum sviðum. Unga fólkið þarf
að fá að læra. Þess er framtíðin og það á að skapa framfarirnar.
En til þess þarf góða skóla, iðnskóla og tækniskóla, og bygging
sú, sem ltér um ræðir og byrjað er að reisa, er fyrsta skilyrðið
til þess, að þeim verði komið á. Einnig af þeirri ástæðtt þarf að
flýta byggingu þess eins mikið og verða má.