Jörð - 01.06.1948, Blaðsíða 87
JÖRÐ
277
TIL allrar ógæfu fyrir Kína og Austur-Asíu varð þetta sam-
komulag ekki langært. 1941 voru afturhaldsblöðin kín-
versku farin að ráðast harkalega á Kommúnistana, og margar
þúsundir af úrvalsliði stjórnarhersins voru hafðar til þess eins
að varna öllu samneyti Kommúnistahéraðanna Slrensi, Shansi
og Kansu við nágrannana. Þetta sundurþykki dró mikið úr
baráttuþreki Kínverja gegn Japönum. Jafnframt unnu aftur-
haldsöflin í Kuomintang stöðugt á, bæði í stjórninni og hern-
um. Stjórnin bar því við, að ekki gæti orðið um samræmdar
hernaðaraðgerðir gegn Japönum að ræða, meðan Kommúnistar
liefðu sjálfstæða heri; en trúanlegri hefði verið hennar góði
tilgangur, ef hún hefði sýnt aðra eins ósérplægni og ættjarðar-
ást og hinir illa vopnuðu skæruliðar Kommúnistanna.
Ir NOKKUR ár voru Kommúnistahéröðin hérumbil alveg
einangTuð. í maí 1944 tókst þó, eftir langa mæðu, að fá
leyfi Tsjungking-sljórnarinnar til þess, að fimm erlendir blaða-
menn færu til Yenan.
Frásögn þessara blaðamanna breytti mikið skoðunum Breta
og Bandarkjamanna á ástandinu í Kína. Það varð ljóst, að þrátt
fyrir skort á flestu halði stjórninni í Yenan tekizt að bæta mik-
ið efnahag almennings og glæða félagsanda og félagsvitund í
þessu afskekkta og strjálbyggða landi. Pólitísk trúarbrögð
höfðu verið soðin saman úr kenningum þeirra Sun Yat-Sens
og Karl Marx, og kommúnistískt Kínaveldi hugðu leiðtog-
arnir sér að mynda á friðsamlegan hátt, stig af stigi.
Þeim, sem kunnugir voru deyfð Tsjúngking-stjórnarinnar, var
framlag Kommúnista til baráttunnar við Japana hreinasta
opinberun. Þó að þeir Itefðu ekki annað en handvopn til að
berjast með, voru þeir mjög duglegir skæruliðar.
Eftir því sem Japanar sóttu lengra og lengra inn í landið,
komu skæruliðar þessir upp fleiri og fleiri herstöðvum bak við
vlglínu þeirra um allt Norður og Mið-Kína. Fólkið á þessum
stöðum var æft svo vel til viðnáms og skemmdarverka, að Jap-
anar át.tu jafnvel l’ullt í fangi með að halda við nauðsynlegum
járnbrautarsamgöngum. Engar líkur eru til þess, að Rússar liafi
haft nokkur afskipti af Yenan-stjórninni rneðan á stríðinu