Jörð - 01.06.1948, Blaðsíða 53
JÖRÐ
243
nesku þjóðina sömu þrælatökum og aðrar þær þjóðir, sem
Rússar hafa kúgað til leppmennsku. Þá hafa þeir og reynt að
hafa áhrif á það, að ekki tækist með Norðurlandaþjóðunum
samvinna, sem væri nokkuð meira en nafnið tómt, og Austur-
ríki halda þeir í seigpínandi úlfakreppu. Þeir hafa látið þar
greipar sópa um flest þau verðmæti, sem þeir telja sér geta að
haldi komið — og eins á liernámssvæði sínu í Þýzkalandi. í
Grikklandi nota þeir fimmtu herdeild sína, gríska Kommún-
ista, studda óaldarflokkum og hermönnum frá Búlgaríu, Al-
baníu og Júgóslafíu, til þess að koma í veg fyrir viðreisn at-
vinnuveganna og friðsamlega þróun þjóðlífsins, en í öðrum
vestrænum löndum láta þeir Kommúnistaflokkana sporna af
alefli gegn öllum tilraunum til úrbóta því vandræðaástandi í
atvinnumálum, viðskiptamálum og fjármálum, sem leitt hefur
af styrjöldinni. Skipulagðar verkfallsöldur ganga yfir löndin,
hvar sem Kommúnistaflokkarnir eru sterkir — og ef til vill
verður sigri franskra lýðræðisflokka í baráttunni gegn óeirð-
unum og verkföllunum í nóvember 1947 jafnað að mikilvægi
við orrustuna frægu á Katalónsvöllum, þá er Attila Húna-
kóngur var ekki aðeins stöðvaður í sókn sinni, heldur honum
snúið við. Þá hefur og beiting Rússa á neitunarvaldinu í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna, sýnt það ærið glögglega, að
þeir sporna gegn því, að í heiminum skapist alþjóðlegt vald,
sem fái stemmt stigu við yfirgangi þeirra og lialdið uppi lög-
um og rétti í samskiptum milli ríkja, stórra sem smárra — og
auðvitað var af hinu sama mörkuð stefna þeirra í kjarnorku-
málunum, enda hefði alls ekki verið mögulegt að liugsa sér
a'-þjóðlegt eftirlit í þeim efnum, án þess að járntjaldinu væri
þá svipt frá sviði rússnesks þjóðlífs. Þá er það stofnun sam-
hands hinna kommúnistísku flokka. í því eru þátttakendur,
auk Kommúnistaflokksins rússneska, flokkarnir í þeim lönd-
um Evrópu, þar sem Rússar ráða öllu — eða þá eiga mjög
mikil ítök —, en Kommúnistaflokkar hinna landanna hafa
ekki verið látnir ganga í það formlega, þó að liins vegar sé
öllum auðsætt, sem ekki eru stjórnmálalegir fáráðar, að þeir
hokkar lúta engu síður vilja hinna rússnesku húsbænda en
hinir, þar eð þeir verja hvers konar ofbeldi af hendi Rússa
16*