Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1923, Page 63

Eimreiðin - 01.10.1923, Page 63
EIMREIÐIN SIGURINN 319 orðunum æðra?« Og á sama augnabliki varð steinhljóð aftur í salnum. Og nú sýndi hann með afskaplegum lærdómi fram á það, að í upphafi var orðið, — að orðið var guð. Hann gróf upp tilvitnanir úr ritningunum, bygði orðinu háreist altari og setti það ofar öllu öðru á himni og jörðu. Með þrumuraust sinni -endurtók hann spurninguna: »Hvað er orðunum æðra?« Hann leit hreykinn í kring um sig. Enginn vogaði að mót- mæla honum og hann settist niður hægt eins og ljón, sem nýbúið er að fylla kviðinn á kjötinu af bráð sinni. Lærifeð- urnir æptu fagnaðaróp. Konunginn setti hljóðan af undrun, og Shekar fanst eins og hann yrði að engu við hliðina á þess- um afskaplega lærdómi. Samkomunni var slitið í þetta sinn. Daginn eftir hóf Shekar söng sinn. Ljóðið hans var um það, þegar hljóðpíputónar ástarinnar rufu í fyrsta sinn kyrðina í Vrindaskógi. Hjarðmeyjarnar vissu ekki hver framleiddi þessa tóna eða hvaðan þeir komu. Stundum virtust þeir koma í sunnanvindinum, stundum frá skýjadrögunum á hæðunum. Þessi fagri hljóðfærasláttur flutti fundarboð frá heimkynni sól- oruppkomunnar og barst andvarpandi af sorg frá sólseturs- röndinni í vesturvegi. Og stjörnurnar voru eins og nóturnar í hljóðfærinu, sem fyltu drauma næturinnar sönglist. Það var eins og tónaregnið heltist yfir hjarðmeyjarnar úr öllum áttum, frá ökrum og engjum, skuggasælum lundum og einstígum, •ofan úr blárri hvelfingu himinsins og úr glitrandi grængresinu á jörðinni. Þær skildu ekki þýðingu þessara tóna og gátu heldur ekki lýst með orðum þeirri þrá, sem altók hjörtu þeirra. En augu þeirra fyltust tárum, og þeim fanst þær þrá dauða, sem fullkomnaði þetta líf. Shekar gleymdi áheyrendunum, gleymdi þrekraun þeirri, sem fyrir honum lá, — að sigra keppinaut sinn. Hann stóð aleinn í flaumi sinna eigin hugsana, sem titruðu og þyrluðust alt í kring um hann, eins og laufblöð í sumarstormi, — og söng Flautusönginn. I huga hans var myndin af skugga og bergmálið af veiku, glamrandi hljóði fjarlægs fótataks. Shekar settist. Einhver ósegjanlegur, unaðarblandinn dapur- leikur fór eins og titringur um áheyrendurna, og þeir gleymdu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.