Iðunn - 01.06.1884, Page 120
182 Hjalmar Edgren :
Newport News, og vórn virkin þannig í skökkum fer
hyrning, og hóldu ásamt nokkurum herskipum vörn
uppi fyrir mynni James-fljótsins og Sewalls-tanga, þar
sem óvinir vorir höfðust við og vörðu innsiglingu að
bœnum Norfolk. Enn fánarnir blöktu blíðlega í
vorblænum og fallbyssurnar f virkjunum vóru stein-
þegjandi sem friðrinn væri inn tryggasti, og svo
þögular höíðu þær verið allan vetrinn, nema endr
og siunum þá er vor sókndjaríi hershöfðingi hafði
gert hríð að virkjunum á Sewalls-tanga.
Vér rérum vorum örskreiða báti yfir sægrœnar
bárurnar og vórum að tala um leiðangr er í ráði var
með vorinu ; var þá svo til ætlað, að meginherinn
skyldi leggja frá Eort Monroe upp til Eichmond,
þar sem var aðalstöð óvina vorra og aðsetr stjórnarinn-
ar í suðrríkjunum ; vórum vér þegar búnir að draga
saman allmikinn flutninga-flota við kastalann. Alt
í einu gall við einn a£ fólögum vorum upp úr eins
manns hljóði og segir: »Hvað ætli só um að vera
á herskipunum ?« Oss varð öllum litið þangað, og
sáum vér þegar, að þar var eitthvað á seyði venju
frémr; herskipabátarnir vóru innbyrðir, fallbyssurn-
ar gægðust út um opin á hliðum skipanna og her-
mennirnir vóru önnum kafnir í kring um þær, reykr-
inn þirlaðist upp úr strompunum og akkerunum
var létt. |>að var auðséð á öllu, að verið var
að búast til orrustu. ^Merrimac’ kemr!« sögðu fó-
lagar mínir, og urðu allir uppi til handa og fóta og
sóttu nú róðrinn ákaflega. Náðum vér skjótt heini
að virki voru Bip Baps og tókum að hlaða fall-
byssur vorar.
x.Merrimac’ kemr«. — þessi orð skutu oss heldr
skelk í bringu, því að það hafði flogið fyrir og vér höfð-